Ávöxtunarkrafa skuldabréf ekki lægri síðan eftir hrunið 22. júní 2010 11:55
Ávöxtunarkrafa flestra markflokka á skuldabréfamarkaði er nú lægri en hún hefur nokkru sinni verið, ef undan eru skildar fyrstu vikurnar eftir fall bankanna haustið 2008 í þeim flokkum sem þá voru við lýði. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandabanka. Þar segir að þannig sé ávöxtunarkrafa styttri ríkisbréfaflokkanna á bilinu 3,70% - 4,26% þegar þetta er ritað (kl.10.30), en krafa þessara flokka var í kring um 7,50% í upphafi árs. Krafa tveggja lengstu ríkisbréfaflokkanna, RIKB19 og RIKB25, hefur sömuleiðis lækkað linnulítið frá áramótum. Var krafa þessara flokka í kring um 8% í janúarbyrjun en er nú 6,06% á fyrrnefnda flokknum en 6,16% á þeim síðarnefnda. Til samanburðar eru innlánsvextir Seðlabankans, sem þessa dagana eru virkustu skammtímavextir bankans, nú 7,0%. Auk lækkunar Seðlabankavaxta undanfarið skýrir mikill áhugi erlendra krónueigenda lága ávöxtunarkröfu stuttu ríkisbréfaflokkanna að verulegu leyti. Öðru máli gegnir um löngu ríkisbréfaflokkana tvo, en útlendingar eiga einungis lítinn hluta þeirra. Þar hafa lífeyrissjóðir og aðrir innlendir fagfjárfestar hins vegar reynst áhugasamir kaupendur. Samkvæmt nýjasta markaðsyfirliti Lánamála ríkisins áttu slíkir aðilar í apríllok tæplega 68% af RIKB25-flokknum og tæp 38% af RIKB19-bréfunum. Þótt krafa lengri íbúðabréfa hafi einnig lækkað frá áramótum hefur hin mikla kröfulækkun ríkisbréfanna skilað sér í verulegri lækkun verðbólguálags á skuldabréfamarkaði það sem af er ári. Verðbólguálag til 3ja ára er nú 1,3% og til 7 ára er verðbólguálagið 2,6%. Sambærilegar tölur í upphafi árs voru 4,5% og 3,9%. Þótt hjöðnun verðbólgu undanfarna mánuði eigi vafalaust sinn þátt í þessari þróun koma fleiri þættir til. Má þar nefna það gólf sem 3,5% tryggingarfræðileg uppgjörskrafa lífeyrissjóðina hefur sett kröfu á verðtryggðum skuldabréfum, þar sem sjóðirnir vilja hafa ógjarnan viljað kaupa íbúðabréf á lægri kröfu. Sprunga kom hins vegar í þetta gólf í síðustu viku og hefur krafa lengri íbúðabréfaflokkanna verið undir 3,5% markinu undanfarna daga. Krafa þeirra er nú á bilinu 3,32% - 3,38%. Í raun eiga lífeyrissjóðirnir fárra kosta völ, vilji þeir kaupa ríkistryggð skuldabréf á kröfu sem ekki hefur neikvæð áhrif á tryggingarfræðilega stöðu þeirra þar sem krafa flestra ríkisbréfaflokka er undir þeim 6,1% mörkum á nafnkröfu sem samsvarar í grófum dráttum 3,5% raunvaxtaviðmiðinu.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Sjá meira