Möguleikar Íslands í riðlinum Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Linz skrifar 23. janúar 2010 13:00 Stuðningsmenn Íslands hafa staðið sig vel. Mynd/Diener/Leena Manhart
Ísland á enn möguleika á því að falla úr leik í riðlakeppninni eða þá að fara áfram í milliriðlakeppnina með þrjú stig - flest allra liða í riðlinum. Ísland mætir Danmörku í lokaumferð riðlakeppninnar í kvöld, eftir leik Austurríkis og Serbíu. Danmörk vann í fyrradag Serbíu, 28-23. Það þýðir að Danir eru öruggir áfram í milliriðlakeppnina og taka að minnsta kosti tvö stig með sér. Ef Ísland vinnur Danmörku fara Íslendingar með þrjú stig með sér í milliriðlakeppnina og Danir verða enn bara með tvö. Sigurvegari leiks Serbíu og Austurríkis fer þá áfram í milliriðlakeppnina með eitt stig. Verði niðurstaðan jafntefli í þeim leik fer Austurríki áfram þar sem liðið tapaði með minni mun fyrir Danmörku en Serbía. Tapi Ísland hins vegar fyrir Danmörku fer það eftir úrslitum leiks Austurríkis og Serbíu hvort liðið kemst áfram í milliriðlakeppnina. Verði niðurstaðan sú að leiknum lyktar ekki með jafntefli kemst Ísland áfram með eitt stig áfram í milliriðlakeppnina. Verður niðurstaðan hins vegar jafntefli verða Austurríki, Serbía og Ísland öll með tvö stig. Þá er spurningin hversu mörg mörk verða skoruð í leik Austurríkis og Serbíu. Ef liðin skora hvort um sig 38 mörk eða fleiri í leiknum er Ísland úr leik og Austurríki og Serbía komast áfram. Verði niðurstaðan að liðin skori 36 mörk eða færri komast Austurríki og Ísland áfram. Verði niðurstaðan 37-37 jafntefli flækjast málin því þá eru Serbía og Ísland með jafn mörg mörk skoruð í innbyrðisviðureignum þessara þriggja liða. Austurríki væri þó komið áfram. Þá skiptir heildarmarkatalan í riðlinum máli og þá má Ísland ekki tapa með stærri mun fyrir Danmörku en Serbía gerði í kvöld. Það þýðir í mesta lagi fjögurra marka tap eða þá fimm marka tap og þá yrði Ísland að skora meira en 23 mörk.
Mest lesið Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti „Mér fannst við ekki góðir“ Íslenski boltinn „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Frábær sigur á Þjóðverjum sendi Ekvadora áfram Fótbolti Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn Íslenski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-4 | Flengdu Blika og hafa unnið tólf í röð Íslenski boltinn Fleiri fréttir Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Sjá meira