Vilhjálmur vill annan matseðil Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. ágúst 2010 20:00 Vilhjálmur segir að þær hugmyndir sem nefndar eru í Morgunblaðinu séu einskonar matseðill að skattahækkunum. Sjálfur vill hann hins vegar sjá niðurskurð á opinberum útgjöldum. Mynd/ Vilhelm.
Samtök atvinnulífsins leggja áherslu á það að skattar verði ekki hækkaðir heldur opinber útgjöld lækkuð til að ná jafnvægi í ríkisfjármálum fyrir næsta fjárlagaár, segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA. Morgunblaðið sagði í dag frá því að ríkisstjórnin hyggðist hækka skatta. Þar væri hugsað til hækkunar fjármagnstekjuskatts, tekjuskatts fyrirtækja, auðlegðarskatts, erfðafjárskatts og umhverfis- og auðlindagjalds. Jafnframt lægju fyrir tillögur um sérstakan bankaskatt. Óljóst hvaða skatta ætti að hækka„Þetta plagg sem vísað er til er svona einskonar matseðill, þar sem vísað er í hugmyndir um hækkun hinna ýmsu skatta," segir Vilhjálmur. Ekki hafi verið tekin nein ákvörðun um það hversu mikið ætti að hækka skatta eða hvaða skattahækkanir ættu að ganga fram. Vilhjálmur bendir á að skattar hafi verið hækkaðir ríflega fyrir árið í ár og því væri eðlilegra að líta til lækkunnar opinberra útgjalda fyrir næsta fjárlagaár. Vilhjálmur segist hingað til hafa litið svo á að þetta væru einmitt markmið ríkisstjórnarinnar. Bjart framundan Vilhjálmur segir að auk þess sem það þurfi að aðlaga tekjur og útgjöld fyrir næsta fjárlagaár hafi hingað til verið litið svo á að slík aðlögun upp á allt að 30 milljarða þyrfti að eiga sér stað fyrir árin 2012 og 2013. Nú sé, þrátt fyrir allt, ákveðinn meðbyr í efnahagslífinu og störfum að fjölga. Það sé vísbending um að staða efnahagslífsins sé betri en áður var talið. Möguleiki sé á hagvexti á næsta ári ef menn stuðli að því að stórar fyrirhugaðar fjárfestingar í atvinnulífinu og opinberum framkvæmdum fari af stað. Verði þetta raunin sé sú aðlögun í ríkisfjármálum sem áður var talið að þyrfti að eiga sér stað fyrir árin 2012 og 2013 ekki lengur nauðsynleg. „Þá væri nóg að lækka útgjöld fyrir árið 2011 og við værum svo komin fyrir vind í ríkisfjármálum," segir Vilhjálmur.
Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Fleiri fréttir Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Sjá meira