Innlent

Óvissa um aðkomu kröfuhafa

Fulltrúar skilanefnda Eggert Þór Ólason, yfirlögfræðingur Landsbankans, Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, og Steinar Þór Guðgeirsson, formaður skilanefndar Kaupþings, á blaðamannafundi í gær.
Fulltrúar skilanefnda Eggert Þór Ólason, yfirlögfræðingur Landsbankans, Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, og Steinar Þór Guðgeirsson, formaður skilanefndar Kaupþings, á blaðamannafundi í gær. fréttablaðið/gva
„Það er búið að fastsetja valkostina og óvissunni er eytt með þessu samkomulagi," segir Árni Tómasson formaður skilanefndar Glitnis.

„Með samningnum hefur skilanefnd Glitnis, fyrir hönd kröfuhafa, öðlast rétt til að eignast Íslandsbanka að öllu leyti án þess að leggja til frekari fjármuni og ríkið hefur enn fremur skuldbundið sig til að veita bankanum 25 milljarða lausafjárstuðning. Með þessu teljum við að bankinn sé að fullu fjármagnaður og að lausafé hans sé tryggt um fyrirsjáanlega framtíð," segir Árni.

Óvíst er hvort kröfuhafar muni eignast Íslandsbanka að fullu strax, en kröfuhafar hafa kauprétt að allt að 90 prósentum af hlutafé bankans á næstu fimm árum.

„Ég tel það mjög gott að það sé búið að fjármagna bankana," segir Steinar Þór Guðgeirsson, formaður skilanefndar Kaupþings. Hann segir að kröfuhafar bankans hafi verið þátttakendur í þessu ferli frá nóvember og þeir séu áhuga­samir um að eignast banka sem sé í góðum rekstri.

Eggert Þór Ólason, yfirlögfræðingur Landsbankans, segir að verðmat eigna bankans hafi gengið vel. Verðmatið sé ákaflega mikilvægt í tilfelli Landsbankans þar sem uppgjör milli gamla og nýja bankans sé með öðru móti en í tilfelli Kaupþings og Glitnis. -bþa




Fleiri fréttir

Sjá meira


×