Fyrirmyndarlottó – fyrir hverja? 23. desember 2009 06:00 Eiður Svanberg Guðnason skrifar um Lottó Sá sem þetta skrifar hefur greinilega komið við kaunin á forystumönnum þeirra hreyfinga, sem skipta með sér Lottógróðanum. Þegar það var orðað í allri hógværð fyrir nokkru, að tímabært væri að endurskoða það fyrirkomulag, sem verið hefur við lýði í 23 ár um skiptingu hagnaðarins af Lóttóinu, þá rignir inn greinum á síður Fréttablaðsins frá forystumönnum þeirra samtaka, sem njóta Lóttógróðans. Ákvörðun um það fyrirkomulag sem nú gildir tóku fulltrúar þriggja stjórnmálaflokka á næturfundi í þingflokksherbergi Alþýðubandalagsins í mars 1986. Því fyrirkomulagi var ekki ætlað að standa til eilífðarnóns. Ef svo hefði verið, hefði heimildin til að reka talnagetraunir ekki verið tímabundin. Formaður Ungmennafélags Íslands sendir mér kveðju í Fréttablaðinu 18. desember. Formaðurinn svarar í engu því sem ég hef sagt um byggingabrask UMFÍ í miðborg Reykjavíkur. Hversvegna þarf UMFÍ að reisa stórbyggingu í miðborginni? Hversvegna ætlaði UMFÍ í samstarf við Icelandair þar sem fyrrverandi ráðherra Framsóknarflokksins réði ríkjum? Þessu hefur ekki verið svarað. Það væri gott framlag í þessa umræðu, ef formaður UMFÍ svaraði þessu en líklega vill UMFÍ sem minnst um þetta ræða. Einhverra hluta vegna kýs formaður UMFÍ að blanda fyrri störfum mínum í það sem ég hef verið að skrifa um Íslenska getspá, Lottóið. Þetta tvennt er allsendis óskylt. Það er hægt að gagnrýna störf mín á Alþýðublaðinu, í Sjónvarpinu, á Alþingi og í utanríkisþjónustunni. Þau störf eru þessu máli allsendis óviðkomandi. Það er enn fremur fjarri öllu lagi að ég hafi „ ráðist að öllu því góða fólki sem hefur unnið og er að vinna innan ungmennafélagshreyfingarinnar", eins og formaðurinn kýs að orða það. Það er meira en langsótt, að gagnrýni á ákvarðanir forystu UMFÍ sé að ráðast gegn öllum sem vinna fyrir þessa hreyfingu! Það er auðvitað fjarstæða og til þess eins sagt að leiða athyglina frá kjarna málsins. Undirritaður hefur beint spurningum til forstjóra Íslenskrar getspár. Þeim var ekki svarað vegna þess að Íslensk getspá þarf ekki að svara spurningum frá „fólki úti í bæ". Ég sætti mig ágætlega við að vera „fólk úti í bæ". En ég sætti mig ekki við að neitað sé að upplýsa um ráðstöfun opinbers fjár. Nú væri fróðlegt fyrir lesendur Fréttablaðsins að heyra svör formanns UMFÍ við því hversvegna ekki megi ræða það, að til dæmis langveik börn, krabbameinssjúklingar, hjartveikir, eða geðfatlaðir eigi sæti við borðið þar sem hagnaði af einkaleyfisreknum talnagetraunum er skipt. Ef undan er skilið Öryrkjabandalagið, er þetta fé þá eingöngu ætlað fullfrísku fólki sem leggur stund á íþróttir, til að greiða íþróttamönnum, innlendum sem erlendum og þjálfurum laun og greiða niður golfiðkan? Nú ætlar sá sem þetta skrifar að láta nótt sem nemur og ekki skrifa meira um þessi mál fyrr en ef til vill á nýju ári. Þessi skrif hafa skilað tilætluðum árangri. Umræðan er rétt að byrja. Það er gott. Höfundur er fyrrverandi alþingismaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar