Sérsveitarmenn og lögreglan á Akureyri tóku töluvert magn fíkniefna 25. maí 2009 12:22
Lögreglan á Akureyri lagði hald á rúmlega 60 e-töflur, tæp 10 grömm af kókaíni og svipað magn af amfetamíni auk smáræðis af hassi í fjórum aðskildu málum um síðustu helgi. Þá lagði lögregla hald á peninga sem taldir eru vera ágóði af fíkniefnasölu. Þrír ökumenn voru teknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Aðfararnótt laugardagsins var maður á þrítugsaldri handtekinn í miðbæ Akureyrar með rúmlega 20 e-töflur á sér. Lögregla hafði leitað í bifreið sem tengdist manninum fyrr um kvöldið og fundið þá um 40 e-töflur til viðbótar auk tæplega 10 gramma af kókaíni. Maðurinn er grunaður um að hafa ætlað fíkniefnin til sölu á Akureyri en lögreglan lagði hald á peninga sem taldir eru vera ágóði af fíkniefnasölu. Málið er í rannsókn, eftir því sem fram kemur á vef lögreglunnar. Sömu nótt gerði lögreglan húsleit í íbúð í miðbæ Akureyrar og handtók þar einn pilt og þrjár stúlkur á tvítugsaldri. Við leit í íbúðinni fundust tæp 10 grömm af amfetamíni og smáræði af kókaíni, hassi og e-töflum. Pilturinn og ein stúlkan gengust við að eiga efnin. Við húsleitina fannst einnig þýfi, þar á meðal fartölvur, hljómflutningstæki, skartgripir og heimabíótæki, sem reyndist vera úr innbroti í einbýlishús á Akureyri. Innbrotið hafði verið tilkynnt til lögreglu fyrr um kvöldið. Við framhaldsrannsókn handtók lögreglan einn pilt á tvítugsaldri til viðbótar um nóttina og við skýrslutökur daginn eftir játaði hann á sig innbrotið. Við leit á heimli hans fannst afgangurinn af þýfinu og þrír blómapottar sem hann kvaðst hafa notað við að reyna að rækta kannabisplöntur. Að málunum unnu lögreglumenn úr fíkniefnahóp lögreglunnar á Norðurlandi, sérsveit Ríkislögreglustjóra á Akureyri, vakthafandi lögreglumenn auk rannsóknarlögreglumanna úr rannsóknardeild lögreglunnar á Akureyri.
Mest lesið Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Innlent Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Innlent Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Innlent Önnur sprunga opnast Innlent Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Innlent Trump kærir fjölmiðlaveldi fyrir ærumeiðingar Erlent Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Innlent Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Innlent Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Innlent Metallica kom Tomorrowland til bjargar eftir brunann Erlent Fleiri fréttir Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Íslenskur fjárhundur á Bessastaði? Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Mygla fannst á bæjarskrifstofunum Minnihlutinn verði bara að treysta þjóðinni Litlu mátti muna: Glannalegur framúrakstur í Hörgárdal Málsókn Grindvíkinga, heimóttarskapur og heimkoma í beinni Glerflöskur stranglega bannaðar á Þjóðhátíð Dæmdur fyrir að flytja kratom til landsins Fundu fleiri vopn og handtóku suma á skemmtun á Selfossi Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Ógnaði lífi vegfarenda og lögreglu með ofsaakstri í Hafnarfirði Var ekki að láta undan þrýstingi Grindvíkinga Afleiðingarnar velti á Flokki fólksins Kannast við tannstönglatrixið: „Nágrannavarsla er albesta vörnin“ Kjósendur stjórnarflokkanna „bitrir“ og í basli með sjálfsmyndina Búast við gosmóðu fyrir norðan og vestan næstu daga Sinnaskipti lögreglustjórans og Þorgerður ræðir væntanlegan varnarsamning við ESB Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Sagði veikri dóttur sinni að hann vonaði að hún myndi deyja Tíðindalítil nótt á gosstöðvunum „Það er bara ömurlegt að fá þessi tíðindi núna“ Skipulögð skref í átt að aðild án umboðs þjóðarinnar Séríslenskt gervi-Oxy í mikilli dreifingu Grindavík opin fyrir almenning á nýjan leik Ferðamenn streyma í Hrísey alla daga vikunnar Tilkynnt um þjófnað í fjórum verslunum Sjá meira