Kaupþing gengur ekki að tilboði Björgólfsfeðga um niðurfellingu Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 17. ágúst 2009 18:30
Kaupþing hefur ákveðið að ganga ekki að tilboði Björgólfsfeðga um niðurfellingu á helming á 6 milljarða króna skuld þeirra við bankann. Málið er komið í innheimtuferli. Samson, eignarhaldsfélag í eigu Björgólfsfeðga og þá Magnúsar Þorsteinssonar, keypti 45,8 prósenta hlut ríkisins í Landsbankanum í árslok 2002. Kaupverðið var þá 11,2 milljarðar króna. Krafa Kaupþings á hendur þeim feðgum er tilkomin, m.a. vegna þessara kaupa. Upphaflega hljóðaði lánið upp á 3,4 milljarða króna en stendur í dag í tæpum 6 milljörðum með dráttarvöxtum og öðrum áföllnum kostnaði. Í byrjun júlí bárust fréttir af því að feðgarnir hefðu gert Kaupþingi tilboð um að greiða um fimmtíu prósent af skuldinni, eða þrjá milljarða, en þeir eru í persónulegri ábyrgð fyrir láninu. Mikil reiði braust út og bárust Finni Sveinbjörnssyni bankastjóra Kaupþings og eiginkonu hans hótanir í kjölfarið. Í samtali við fréttastofu sagði Finnur að ákveðið hefði verið að ganga ekki að tilboði feðganna. Málið væri komið í úrvinnslu og innheimtuferli. Þann 31. júlí sl. var Björgólfur Guðmundsson úrskurðaður gjaldþrota í héraðsdómi Reykjavíkur en það var stærsta gjaldþrot einstaklings hér á landi. Feðgarnir voru hinsvegar báðir í persónulegri ábyrgð og því verður að teljast líklegt að ábyrgðin falli alfarið á Björgólf Thor. Einu persónulegu eigur Björgólfs Thors hér á landi eru tvær húseignir í Reykjavík. Björgólfur á 50% eignarhlut á móti sambýliskonu sinni í Óðinsgötu 5. Húsið er 315 fermetrar og er fasteignamatið 57 milljónir króna. Hin húseignin er á Fjölnisvegi 3 og er 316 fermetrar. Fasteignamat þeirrar eignar er tæpar 55 milljónir. Björgólfur á einnig félög hér á landi, s.s. Actavis og símafyrirtækið Nova. Það og fleiri félög eru í eigu Novator ehf sem er svo í eigu BeeTeeBee Limited. Það félag er skráð á bresku Jómfrúareyjunum og er, samkvæmt heimildum fréttastofu, eitt þeirra 400 aflandsfélaga sem ríkisskattstjóri hefur nú til skoðunar. Þeir lögfræðingar sem fréttastofa hefur rætt við í dag segja að hægt yrði að ganga að þeim eignum sé Björgólfur Thor ekki borgunmaður fyrir skuldinni við Kaupþing. Slíkt sé þó oft miklum erfiðleikum háð. Þær upplýsingar fengust frá Novator að viðræður við Kaupþing um lausn á þessu máli hafi verið í gangi og menn hafi ekki fengið upplýsingar um að þeim væri lokið.
Mest lesið Sprengjum og öxum beitt við heimili til að kúga út fé Innlent Var á yfir 200 kílómetra hraða þegar slysið varð Innlent Landlæknir sviptir Kalla Snæ lækningaleyfi Innlent Fær þyngri dóm fyrir að nauðga fjórtán ára tálbeitu Innlent Fjögurra daga bongóblíða í vændum Veður „Kanntu ekki að skammast þín?“ Innlent Viktor Arman lést af slysförum á Esjunni Innlent Skúringatæki pikkfast utan á eina segulómtækinu á Hringbraut Innlent Fann sér ekki stað hjá forsetanum eftir breytingar Innlent Íranir séu vikum eða mánuðum frá kjarnorkusprengju Erlent Fleiri fréttir Selja sinn sögufrægasta grip til að lifa af sumarið Sofnaði undir stýri og svipt bílprófinu í hálft ár Benz brann í Breiðholti Minnihlutinn mætir ekki á morgun Vilja milljarð frá First Water sem hafnar vanefndum Allt á suðupunkti á Alþingi, árásir í Íran og fágætur flygill Selma nýr skólameistari á Króknum Hafa enga hugmynd hve lengi segulómstækið verður ónothæft Þórdís kemur Þorgerði til varnar: „Birtingarmynd pólitískra öfga“ Skúringatæki pikkfast utan á eina segulómtækinu á Hringbraut Stofnandi Viðreisnar segir Daða seilast í vasa almennings Burðardýr með þrettán kíló í farangrinum hlaut þungan dóm Sverrir Jónsson ráðinn skrifstofustjóri Alþingis Þyrlan afturkölluð og hinn slasaði sóttur á björgunarskipi Draga úr framkvæmdum um meira en fjórðung vegna rekstrarstöðvunar PCC Kæra utanríkisráðherra fyrir landráð Segja skellt á Skattinn og að „ofbeldi“ viðgangist í nefndinni „Kanntu ekki að skammast þín?“ Hrósaði meirihlutanum og sendi þeim gamla pillu Árásir á Íran og átök á Alþingi Lögðu hald á töluvert magn fíkniefna og milljónir í reiðufé Ísland fyrsta landið til að dreifa Naloxone í öll fangelsi Segir reikninginn ekki enda hjá eldri borgurum Nemandinn sem stakk Ingunni nítján sinnum: Segir „tæknilega séð mögulegt“ að hann geri það aftur Kínverskur dómur um banaslys skipti engu máli og TM slapp Landlæknir vísar málflutningi Kalla Snæ á bug Þingmenn stjórnarandstöðu ræddu bókun 35 í nærri hálfan sólarhring Tilkynnt um barn með vopn og vímuefni Jón Óttar kærir Ólaf Þór fyrir rangar sakargiftir Gömlum Flugfélagsþristi bætt við á Sólheimasand Sjá meira