Samkeppnisstaða BSV 8. apríl 2009 06:00 Haustið 2008 fór viðskiptafræðideild Háskóla Íslands af stað með viðskiptafræðinám í kvöldskóla. Námið hefur gengið undir nafninu BSV, eða BS-nám með vinnu. Námið er hugsað fyrir þá sem vilja verða sér úti um háskólagráðu í viðskiptafræði en hafa af einhverjum ástæðum ekki möguleika á því að stunda nám í dagskóla. Ástæðurnar geta verið margvíslegar s.s. skuldbindingar er tengjast vinnu eða fjölskyldu. Þessu námstilboði var afar vel tekið og stunda nú um 70 nemendur námið. Það er ánægjulegt, sérstaklega þegar haft er í huga að samkeppnisstaðan er afleit borin saman við hina svokölluðu einkaháskóla.Samkeppnisstaða BSVOLYMPUS DIGITAL CAMERA Auður HermannsdóttirÞegar talað er um afleita samkeppnisstöðu í þessu samhengi er átt við þá staðreynd að nám sem þetta flokkast undir svokallaða þjónustukennslu sem háskóladeild er ekki skylt að veita eða sinna. Námið er því ekki fjármagnað af hinu opinbera með svokölluðum þreyttum einingum heldur eru tekin skólagjöld af nemendum til að standa undir kennslu, kynningum og þjónustu við nemendur. Gjaldið fyrir næsta skólaár er kr. 50.000 fyrir hvert námskeið, sem er sambærilegt gjald og HR og Bifröst taka. Það sem er hins vegar undarlegt við fyrirkomulagið er að einkaskólarnir, HR og Bifröst, fá til viðbótar framlag frá hinu opinbera. Sú upphæð bætist þá við þau gjöld sem skólarnir innheimta af nemendum. Miðað við reikniflokk félagsvísinda gætu tekjur einkaskólanna verið 75-85% hærri fyrir hvert námskeið, fyrst og fremst vegna tekna frá hinu opinbera. Það er auðvitað dálítið undarlegt að horfa upp á það að einkaframtakið skuli byggja samkeppnisstöðu sína á slíku framlagi.Á sama tíma er ekkert sem bendir til þess að nemendur í einkaskólunum fái betri eða meiri þjónustu en nemendur í BSV viðskiptafræðideildar. Kennarar uppfylla allir þær ströngu kröfur sem gerðar eru til kennara í Háskóla Íslands og námið hefur skýra þjónustustefnu og þjónustuviðmið.Vegna þessa hafa einkaskólarnir mun meira fjármagn til að setja í kynningarstarf og annað sem er líklegt til að draga að nemendur og vekja athygli á náminu. Það má því halda því fram að skattgreiðendur kosti kynningarstarf einkaskólanna í þeim tilgangi að hafa betur í samkeppninni við ríkisháskóla, sem þeir eiga þó sjálfir!Samkeppnin1Á undanförnum misserum hefur nokkuð verið rætt um samkeppni milli háskóla. Það er þá gjarnan gert með jákvæðum formerkjum, þ.e. að með tilkomu samkeppninnar batni starf skólanna. Líklega er eitthvað til í því ef horft er á málið út frá markaðslegu sjónarhorni. Samkeppni getur virkað sem hvati til að standa sig betur. Það sem kemur þó mörgum í Háskóla Íslands spánskt fyrir sjónir er það viðhorf að samkeppnin sé nýtilkomin. Alla tíð hefur verið ákveðin samkeppni milli deilda skólans og nemendur hafa getað farið til útlanda í nám. Aukið val hér heima ætti þó að koma nemendum til góða. Einn mælikvarði á samkeppni er að neytendur hafi raunverulega valkosti. Þannig geti það verið kostur fyrir nemendur að geta valið milli skóla A, B eða C.Samkeppnin hefur hins vegar á sér margar hliðar og þegar rætt er um samkeppni á skólamarkaði þarf að vera ljóst við hvað er átt. Snýst samkeppnin fyrst og fremst um að laða að sér sem flesta nemendur og fá þannig greitt fyrir sem flestar þreyttar einingar? Eða snýst hún einnig um hæfa kennara, góða kennsluaðstöðu, góða rannsóknaraðstöðu og að geta boðið upp á annan þann búnað og aðstöðu er prýðir góðan háskóla? Snýst hún ekki einnig um að hið opinbera mismuni ekki nemendum?Ef svo er, þurfa þá ekki að gilda sömu leikreglur fyrir alla sem keppa á markaðinum? Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Heilbrigðiskerfi Íslands - Látum verkin tala! Victor Guðmundsson Skoðun Hörmungarnar sem heimurinn hunsar Ragnar Schram Skoðun Dýrasti staður í heimi Ragnhildur Hólmgeirsdóttir Skoðun Pólitískt ofbeldi, fasismi og tvískinnungur valdsins Davíð Aron Routley,Karl Héðinn Kristjánsson Skoðun Grafið undan grunnstoð ríka samfélagsins Ragnar Þór Ingólfsson Skoðun Mennskan er fórnarlamb Menningarstríðsins! - Tilvist fólks er aldrei hugmyndafræði eða skoðun! Arna Magnea Danks Skoðun Einn pakki á dag Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Við hvað erum við hrædd? Ingvi Hrafn Laxdal Victorsson Skoðun Ákall til allra velunnara Sólheima í Grímsnesi Ingibjörg Rósa Björnsdóttir Skoðun Höfuðborgin eftir fimmtíu ár, hvað erum við að tala um? Samúel Torfi Pétursson Skoðun Skoðun Skoðun Við hvað erum við hrædd? Ingvi Hrafn Laxdal Victorsson skrifar Skoðun Höfuðborgin eftir fimmtíu ár, hvað erum við að tala um? Samúel Torfi Pétursson skrifar Skoðun Pólitískt ofbeldi, fasismi og tvískinnungur valdsins Davíð Aron Routley,Karl Héðinn Kristjánsson skrifar Skoðun Örugg heilbrigðisþjónusta fyrir öll börn frá upphafi - Alþjóðlegur dagur sjúklingaöryggis 2025 María Heimisdóttir skrifar Skoðun Einn pakki á dag Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfi Íslands - Látum verkin tala! Victor Guðmundsson skrifar Skoðun Hörmungarnar sem heimurinn hunsar Ragnar Schram skrifar Skoðun Dýrasti staður í heimi Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan grunnstoð ríka samfélagsins Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Mennskan er fórnarlamb Menningarstríðsins! - Tilvist fólks er aldrei hugmyndafræði eða skoðun! Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Milljarðar evra streyma enn til Pútíns Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Speglar geta aðeins logið – um hlutlægni, huglægni og mennskuna Hjalti Hrafn Hafþórsson skrifar Skoðun Að þétta byggð Halldór Eiríksson skrifar Skoðun Þegar viðskiptalíkan Vesturlanda er stríð – og almenningur borgar brúsann Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Slökkvum ekki Ljósið Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Er það ekki sjálfsögð krafa að fá bílastæði? Aðalsteinn Haukur Sverrisson skrifar Skoðun Of lítið, of seint! Hjálmtýr Heiðdal,Magnús Magnússon skrifar Skoðun Halla fer að ræða um frið við einræðisherra Daníel Þröstur Pálsson skrifar Skoðun Ákall til allra velunnara Sólheima í Grímsnesi Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Varðveitum vatnið – hugvekja Hópur starfsfólks Náttúruminjasafns Íslands skrifar Skoðun Innviðaskuld við íslenskuna Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Náttúruvernd er loftslagsaðgerð og loftslagsaðgerðir þjóna náttúrunni Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Fatlað fólk rukkað með rangindum fyrir bílastæði Haukur Ragnar Hauksson skrifar Skoðun Vissir þú, að.... og eða er þér bara slétt sama Björn Ólafsson skrifar Skoðun Hver hagnast á hatrinu? Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Öfgamaður deyr Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Að taka til í orkumálum Guðrún Schmidt skrifar Skoðun Börn sem skilja ekki kennarann Ingibjörg Ólöf Isaksen skrifar Skoðun Skortur á rafiðnaðarfólki ógnar samkeppnishæfni Evrópu Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar Skoðun Siglt gegn þjóðarmorði Cyma Farah,Sólveig Ásta Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Pólitískt ofbeldi, fasismi og tvískinnungur valdsins Davíð Aron Routley,Karl Héðinn Kristjánsson Skoðun
Mennskan er fórnarlamb Menningarstríðsins! - Tilvist fólks er aldrei hugmyndafræði eða skoðun! Arna Magnea Danks Skoðun
Skoðun Pólitískt ofbeldi, fasismi og tvískinnungur valdsins Davíð Aron Routley,Karl Héðinn Kristjánsson skrifar
Skoðun Örugg heilbrigðisþjónusta fyrir öll börn frá upphafi - Alþjóðlegur dagur sjúklingaöryggis 2025 María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Mennskan er fórnarlamb Menningarstríðsins! - Tilvist fólks er aldrei hugmyndafræði eða skoðun! Arna Magnea Danks skrifar
Skoðun Speglar geta aðeins logið – um hlutlægni, huglægni og mennskuna Hjalti Hrafn Hafþórsson skrifar
Skoðun Þegar viðskiptalíkan Vesturlanda er stríð – og almenningur borgar brúsann Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Náttúruvernd er loftslagsaðgerð og loftslagsaðgerðir þjóna náttúrunni Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar
Skoðun Skortur á rafiðnaðarfólki ógnar samkeppnishæfni Evrópu Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar
Pólitískt ofbeldi, fasismi og tvískinnungur valdsins Davíð Aron Routley,Karl Héðinn Kristjánsson Skoðun
Mennskan er fórnarlamb Menningarstríðsins! - Tilvist fólks er aldrei hugmyndafræði eða skoðun! Arna Magnea Danks Skoðun