Skoðun

Vopnahlé á Gaza

Elsa Dóróthea Daníelsdóttir skrifar

Fólk mér kærkomið hefur haft samband við mig og beðið mig um að skrifa meira til að upplýsa Íslendinga um ástandið hérna megin í heiminum. Svo ég ákvað að segja ykkur frá einhverju af því sem ég hef heyrt og séð síðustu daga. Ég hef margar sorgarsögur að segja, hér á eftir eru aðeins örfáar þeirra.

Nú er vopnahlé í gildi í eina viku. Það er ekki nægur tími fyrir íbúa Gaza að grafa upp þá látnu til þess eins að grafa þá aftur annars staðar. Hvar verður það nú þar sem Ísraelar sprengdu kirkjugarða segjandi að þar væru vopnageymslur. Á öðrum degi vopnahlésins bárust fregnir af 3 nýjum dauðsföllum, einn palestínskur maður var skotinn af ísraelska hernum og 2 börn létust vegna jarðsprengju sem herinn skildi eftir á leið sinni úr Gaza í dag, hversu margar svoleiðis sprengjur voru skildar eftir er ekki vitað enn og hafa því Sameinuðu þjóðirnar varað almenning á Gaza við að vera á þeim svæðum sem herinn tók undir sig. Vitni hafa sagt að herinn hafi verið að sprengja sér leið út úr Gaza með skriðdrekum sínum, til þess eins að skemma sem mest áður en þeir færu. Þessa stundina eru 1317 látnir og 5340 særðir. Af þeim særðu eru 1855 börn og 795 konur. Þess má geta að palestínsk miðstöð fyrir mannréttindi á Gaza hefur lýst því yfir að aðeins 95 af þeim 1194 sem látnir voru frá 27. desember til 17 janúar tilheyrðu baráttusamtökum á Gaza. Yfirgnæfandi meirihluti voru saklausir borgarar eða um 1099 manns. Þessar tölur ættu að segja eitthvað um takmark Ísraela um að einblína aðeins á Hamas.

Þrjár systur fara saman út í búð til að kaupa brauð handa fjölskyldunni. Þær sjá ekkert óeðlilegt á leiðinni. Þegar þær koma út úr búðinni sjá þær fullt af ísraelskum hermönnum. Þeir hefja skothríð á systurnar að tilefnislausu. Sú 16 ára fékk 12 kúlur í sig, sú 12 ára fékk 21 kúlu, sú yngsta sem er ekki orðin 4 ára fékk 2 kúlur, eina í bakið, sem fór út í gegnum magann og eina í hendina, hún er sú eina sem lifði árásina af. Hún er nú lömuð fyrir neðan mitti. Ég horfði í augun á þessari gullfallegu litlu stúlku í gegnum sjónvarpið er hún sagði frá þessari skelfilegu lífsreynslu. Svo horfði hún upp á voteygðann föður sinn og brosti svo undurblítt til hans. Ég mun aldrei gleyma þessu litla yndislega andliti, ég sé það alltaf fyrir mér þegar ég fer að sofa á kvöldin. Ég mun aldrei gleyma því sem þessi litla stúlka gekk í gegnum.

Allavega 13 sjúkraflutningamenn og læknar hafa verið drepnir frá byrjun blóðbaðsins. 3 spítalar voru sprengdir. Í það minnsta 4 skólar sem Sameinuðu þjóðirnar reka voru sprengdir. Geymsla sem Sameinuðu Þjóðirnar áttu var sprengd, þar inni voru vistir til Palestínumanna sem átti að keyra út þennan sama dag. Þetta var matur, ekki skotvopn… Afsakanir Ísraels eru alltaf þær sömu; það kom skothríð frá þessari staðsetningu. Sama þó talsmaður Sameinuðu þjóðanna væri búinn að senda hnitmið allra bygginga sem þær reka til Ísraels og ítrekað búið að láta þá vita að þessar byggingar væru ekki undir stjórn Hamas né að Hamasliðar væru að leita skjóls þar inni. Hver á fætur annarri hrundu byggingarnar út af sprengjuregni Ísraels.

Móðir sat heima með rúmlega 2 ára gamlan son sinn þegar hús hennar var sprengt. Barnið hennar dó en hann var eina barnið hennar eftir að hún var búin að reyna að eiga barn árangurslaust í mörg ár…

Þvílík einhliða árás á saklausa borgara. 13 Ísraelar látnir á meðan 417 palestínsk börn liggja í valnum. Hvar er réttlætið? Mynd eftir mynd af látnu fólki, sundursprengdir líkamar liggja á meðal húsarústanna. Lík af barni og svo öðru barni og enn öðru. Myndir eru sýndar í beinni á meðan fólkið berst áfram við að reyna að bjarga einhverjum. Um daginn fundust nokkur börn lifandi í húsarústum, þau voru á meðal látinna ættingja sinna í 4 daga án matar og vatns, dauðhrædd við að fara út úr húsi. Hversu mörg svona tilvik eigum við eftir að heyra um? Nú næstu daga fáum við fleiri fréttir af Gaza, fullt af átakanlegum fréttum af fleiri dauðsföllum, fleirum látnum börnum og saklausum borgurum.

Ung kona var að eiga sitt fyrsta barn fyrsta dag innrásarinnar, vegna þess að hún komst ekki á spítalann tímanlega þjáðist sonur hennar af súrefnisskorti, honum er ekki spáð eðlilegu heilbrigðu lífi. Þegar ég sé fréttina þá eru 8 dagar síðan hún átti og hún hefur ekki séð barnið sitt síðan þá. Hún þorir ekki út úr húsi af ótta við sprengjuregnið…

Ekki nóg með það að íbúar Gaza þurfi að hafa áhyggjur af ættingjum sínum, vinum og nágrönnum heldur einnig húsum sínum og eigum. Í gær eftir að vopnahléið byrjaði fóru Palestínumenn aftur að húsum sínum til að reyna að bjarga einhverju af eigum sínum. Dag eftir dag í 3 vikur hafa íbúar Gaza reynt sitt besta í að grafa upp landa sína á meðan sprengjurnar féllu allt í kringum þá. Margir þeirra létu lífið við að reyna að bjarga fólkinu sínu.

Ég heyrði frá Aljazeera sögur um fólk sem reyndi að forða sér frá ísraelska landhernum. Þau veifuðu hvítum fánum úr húsum sínum til að komast úr þeim áður en herinn færi að sprengja þau með skriðdrekunum. En þegar út var komið hóf herinn að skjóta þau niður, enn héldu þau á hvítu fánunum.



















Myndin sýnir gamlan mann horfast í augu við eyðilegginguna á Gaza ströndinni. Myndin er fengin af vef Aljazeera.
Fregnir berast af fólki sem hefur snúið aftur heim á svæði þar sem engar sprengjur féllu en samt eru húsin þeirra sundursprengd. Já landherinn var þarna, þeir koma, brjótast inn í húsin. Éta, sofa og rústa öllu innvols á nokkrum dögum. Svo þegar þeir fara þá sprengja þeir húsin utanfrá með byssunum á skriðdrekunum. Ætlunin er bara að skemma og eyðileggja fyrir Palestínumönnum. Þeim er alveg sama hvernig þeir gera það, bara svo lengi sem það er gert.

Ég er auðmjúkur Íslendingur í dag, svo þakklát fyrir fallega frjálsa landið mitt. Þakklát fyrir að eiga tvær yndislegar og heilbrigðar dætur. Þakklát fyrir að geta snúið aftur til Íslands, aftur í frelsið sem er okkar sjálfgefinn réttur. Það er nokkuð sem Palestínumenn hafa ekki getað gert í rúm 60 ár. Ég þarf áfallahjálp eftir þessa lífsreynslu, hvað þá með íbúa Gaza?

Við skulum heldur ekki gleyma þeim 12-13 þúsund Palestínumönnum sem Ísrael hefur fangelsað. 360 þeirra eru undir aldri og margir af þeim dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir það eitt að vera "ógn við Ísrael". Dæmigerð palestínsk fjölskylda í dag lýsir sér sem svo: Elsti bróðirinn er í fangelsi og verður þar næstu 22 árin. Einn af yngri bræðrum hans var í fangelsi í 4 ár eða frá því hann var 16 ára til 20 ára. Móðir þeirra sat inni nokkrum sinnum, lengst í 4 ár. Sama með föðurinn nema hann sat lengst inni í 2 ár. Er ekki eitthvað varhugavert við það þegar svona margir í sömu fjölskyldu hafa setið í fangelsi? Frændur og frænkur segja sömu sögu sem og synir, feður, mæður og dætur Palestínu.

Skilaboð palestínska fólksins eru skýr; komið og sjáið sjálf hvernig Ísrael kemur fram við Palestínumenn… Ekki trúa öllu sem þið sjáið og lesið, komið og sjáið með eigin augum. Og ekki gleyma að við getum öll hjálpað Palestínumönnum að öðlast langþráð og verðskuldað frelsi og frið með því að sniðganga ísraelskar vörur. Farið á www.palestina.is til að nálgast frekari upplýsingar um það.










Tengdar fréttir

„Farðu til Íslands, en komdu ekki aftur"

„Bróðir mannsins míns fór um daginn í útlendingaeftirlitið til að endurnýja ferðaleyfið sitt. Hann fékk það endurnýjað en konan sem afgreiddi hann spurði hann af hverju hann færi ekki bara til Íslands eins og bróðir sinn?

Dagur 17…

Ég vaknaði í morgun, fékk mér kaffi og kveikti á Aljazeera sjónvarpsstöðinni eins og ég geri alla morgna frá því þann 28. desember 2008. Svona er líf mitt orðið hér í Jerúsalem, eðlilegur morgunn í þessari fallegu borg margra trúarbragða.

Íslensk kona í Palestínu óttast ísraelska hermenn og lögreglu

Íslensk kona sem býr í Jerúsalem, í um þriggja tíma akstursleið frá Gaza, segist varla hafa komist út úr húsi eftir að átökin á Gaza hófust í desember. Konan sem býr þar ásamt palenstínskum eiginmanni og tveimur dætrum sínum hefur dvalið í Pakistan frá því í ágúst síðastliðnum. Vegabréfsáritun hennar er útrunnin og þess vegna óttast hún afskipti lögreglu og hermanna.




Skoðun

Sjá meira


×