Skoðun

Lýðskrumið í Davíð Oddssyni nær nýjum lægðum

Friðrik Indriðason skrifar
Það er með ólíkindum að heyra Davíð Oddsson segja að Icesave-klúðrið sé núverandi stjórn að kenna. Þá stöðu sem þjóðin er í má nær alfarið skrifa á hans eigin reikning og þess flokks sem hann stjórnaði um langt skeið. Raunar viðurkennir Davíð í viðtali við Morgunblaðið að hann beri sjálfur að mestu sök á Icesave, fyrir utan Landsbankastjórnina sjálfa.

Í viðtalinu segir Davíð að hann hafi varað bankastjóra Landsbankans, þá Halldór J. Kristjánsson og Sigurjón Þ. Árnason, á fundi í Seðlabankanum snemma árs 2008 að þær væru að koma Björgólfi Guðmundssyni í gjaldþrot en mættu ekki koma íslensku þjóðinni í sömu stöðu.

Davíð Oddsson réð því sem hann vildi ráða í Seðlabankanum þrátt fyrir takmarkað vit á fjármálastarfsemi. Samt sem áður ákvað bankinn í mars á síðasta ári að afnema bindiskylduna á íslenskum útibúum erlendis. Þar með leyfði Davíð Landsbankamönnum að flæða með Icesave reikninga sína yfir Holland með afleiðingum sem allir þekkja. Hann sumsé leyfði þeim Halldóri og Sigurjóni ekki bara að setja Björgólf á hausinn heldur þjóðina alla.

Eftir að hafa sagt í viðtalinu að við berum ekki ábyrgð á Icesave og að Bretar og Hollendingar geti bara sótt sinn rétt fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur kemur þessi tilvitnun undir lok viðtalsins. „Á þessum fundi í Seðlabankanum var ítrekuð sú afstaða Seðlabankans að Landsbankinn gæti ekki safnað peningum endalaust erlendis og við þá söfnun skapaðist sjálfkrafa ríkisábyrgð á Íslandi, ríkisábyrgð sem ekki einn einasti alþingismaður hefði hugmynd um að væri verið að búa til."

Nákvæmlega. Davíð er hinsvegar ekki látinn svara þeirri óþægilegu spurningu í framhaldinu af hverju hann stoppaði þetta ekki sjálfur eins og honum var í lófa lagið að gera. Til dæmis með aukinni bindiskyldu, í stað afnáms, hertari reglum um lausafjárstöðu og fleiri ráðum sem Seðlabankanum voru tiltæk.

Í þessu sambandi má nefna reynslu Líbanon sem er eina þjóð heimsins sem sloppið hefur algerlega við fjármálakreppuna. Sjá hér: /g/2008189316953. En það er kannski af því að Riad Salameh hlaut stöðu sína í krafti menntunnar en ekki pólitískra tengsla.

Það er rétt hjá Davíð Oddssyni að Icesave er versti samningur sem Ísland hefur gert frá Gamla sáttmála árið 1264 þegar landið gekk Noregskonungi á hönd. Hann ætti einnig að átta sig á því að höfnun á Icesave þýðir einfaldlega að við neyðumst til að endurnýja Gamla sáttmála. Ef ekki við Noreg þá einhverja aðra þjóð sem væri reiðubúin að taka þrotabúið Ísland upp á sína arma.

Það er kominn tími til að þjóðin fá frí frá Davíð Oddssyni enda hefur hann engar raunhæfar lausnir fram að færa. Honum á að leyfast að dunda við það í ellinni að rækta garðinn sinn í friði frá dægurþrasi dagsins. Svona svipað og Don Corleone í lokaatriðum myndarinnar The Godfather.




Skoðun

Sjá meira


×