Háskólanemum fjölgar um þriðjung á milli ára 13. ágúst 2009 03:30 Ekki fengust nákvæmar upplýsingar um fjölda nemenda í Háskóla Íslands í haust en búist er við um 16 til 18 þúsund manns. Mynd/Stefán
Um 23 þúsund manns eru skráðir í háskólanám í haust í fjóra stærstu háskóla landsins; Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri, Háskólann í Reykjavík og Háskólann á Bifröst. Um 17 þúsund stunduðu nám í skólunum haustið 2008, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Fjölgunin er því um 35 prósent. Ekki fengust nákvæmar upplýsingar frá Háskóla Íslands um nemendafjölda næstu haustannar en líklega mun nemendafjöldinn vera á bilinu 16 til 18 þúsund, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Haustið 2008 stunduðu 11.847 nemendur nám við skólann. Í Háskólann á Akureyri eru 1.770 skráðir fyrir haustið, samkvæmt Dagmar Ýr Stefánsdóttur, forstöðumanni markaðs- og kynningarsviðs HA. Haustið 2008 stunduðu 1.352 nám við skólann. 70 umsóknum var hafnað af um það bil 900 sem bárust. Fjölmennasta deildin verður hug- og félagsvísindasvið og þar fjölgar einnig mest hlutfallslega. Háskólinn í Reykjavík tekur inn á ellefta hundrað nemenda í haust en um 1.700 nemendur sóttu um skólavist. Nemendur skólans verða því um 3.200 á næsta ári en voru 2.974 síðasta haust. Flestir nemendur hefja nám í tækni- og verkfræðideild og viðskiptadeild. Mest fjölgar nemendum í kennslufræði- og lýðheilsudeild í haust. Það má rekja til þess að annars vegar varð alger sprenging í umsóknum um nám í íþróttafræði og hins vegar byrjar nýtt BSc-nám í sálfræði við deildina í haust, að sögn Jóhanns Hlíðars Harðarsonar, upplýsingafulltrúa HR. Jóhann segir nemendum HR ekki fjölga mikið milli ára þar sem skólinn sé með samning við ríkið um fjölda nemenda. „Það er ekki stefna HR að fjölga nemendum við skólann mikið á næstu árum." Rúmlega 1.300 manns munu stunda nám við Háskólann á Bifröst í haust, að sögn Ágústs Einarssonar, rektors Háskólans á Bifröst. Töluverðu af umsóknum var hafnað. Nokkur fjölgun hefur verið undanfarin ár en um 1.100 manns stunduðu nám þar árið 2007. Sú breyting hefur orðið á hjá Bifröst að nemendur eru teknir inn allt árið. Opnað var fyrir umsóknir strax eftir bankahrun og síðan aftur í janúar, að sögn Ágústs og enn eru laus pláss á nokkrum námsleiðum fyrir haustið.
Mest lesið Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Artemis II er á heimleið Erlent Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Erlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent Fleiri fréttir Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Sjá meira