Rannsaka verðmerkingar 13. ágúst 2009 05:00 Verðmerking eins og þessi er ólögleg að mati ASÍ og Neytendastofu. Samkeppniseftirlitið rannsakar hvort svo sé. Mynd/Heiða
Ólöglegar verðmerkingar á matvöru virðast viðgangast í stórum stíl í íslenskum matvöruverslunum, þrátt fyrir að samkeppnisyfirvöld hafi ítrekað hvatt til þess að látið verði af þeim. Samkeppniseftirlitið hefur hafið stjórnsýslumál sem beinast að smásöluverslunum, framleiðendum matvöru og birgjum. Hér er um að ræða forverðmerkingar á matvöru fyrir matvöruverslanir; sem einnig er kallað leiðbeinandi smásöluverð. Slíkar verðmerkingar ná til tíu til fimmtán prósenta þeirrar matvöru sem seld er í matvöruverslunum hérlendis með veltu á bilinu sjö til tíu milljarðar króna. Helstu vöruflokkarnir eru unnin kjötvara og ostar. Tryggvi Axelsson, forstjóri Neytendastofu, telur að forverðmerkingar brjóti gegn samkeppnislögum. Spurður um hvers vegna Neytendastofa hafi ekki brugðist við, en það er hennar hlutverk, segir Tryggvi að það hafi staðið til um það leyti sem Samkeppniseftirlitið tók málið upp. „Það gekk ekki lengra þar sem þetta var í athugun. Við vildum sjá hvernig Samkeppniseftirlitið tæki á þessu.“ Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir að ekki sé hægt að fullyrða neitt um að forverðmerkingar séu brot á samkeppnislögum. „En Samkeppniseftirlitið hefur hafið stjórnsýslumál sem beinast að smásöluverslunum og meðal annars hópi framleiðenda og birgja á sviði kjötframleiðslu. Sú rannsókn miðar að því að leiða í ljós hvort brotið hafi verið gegn samkeppnislögum með aðgerðum sem tengjast forverðmerkingum.“ Páll segir að niðurstöður rannsóknar Samkeppniseftirlitsins frá því í fyrra hafi leitt í ljós að forverðmerkingar og þau samskipti sem tengjast þeim, kunni að fela í sér aðgerðir sem ganga gegn banni við samráði fyrirtækja eða misnotkun á markaðsráðandi stöðu. „Því var hins vegar ekki slegið föstu án frekari rannsóknar. Könnunin gaf til kynna að þessar forverðmerkingar takmarki samkeppni því verðmunur á þessum vörum milli verslana er margfalt minni en eðlislíkra vara, sem ekki eru forverðmerktar. Nýlegar athuganir ASÍ benda í sömu átt.“ Athugun Samkeppniseftirlitsins leiddi í ljós að verðmunur á milli verslana á þeim vörum sem eru forverðmerktar af birgjum er oft enginn og aldrei meiri en sex prósentum hærri í stórmörkuðum og klukkubúðum en í lágvöruverðsverslunum. Þegar matvöruverslanir verðmerkja sjálfar er ekki óalgengt að verð í stórmörkuðum og klukkubúðum sé 30-60 prósent hærra en í lágvöruverðsverslunum.
Mest lesið Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Erlent Fleiri fréttir Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Sjá meira