Fráleitt að kalla ekki bandarískan sérfræðing til fyrr Guðný Helga Herbertsdóttir og Helga Arnardóttir skrifar 12. ágúst 2009 18:32
Þingmaður Framsóknarflokksins í fjárlaganefnd segir fráleitt að bandarískur sérfræðingur í skuldaþoli þjóða hafi ekki verið kallaður fyrr til vegna Icesave málsins. Sérfræðingurinn segir ótímabært að semja um skilmála Icesave fyrr en betri mynd fæst af því hvað kemur út úr eignum Landsbankans. Fjárlaganefnd fundaði tvisvar fyrir hádegi í dag, m.a. með Lee Bucheit, bandarískum sérfræðingi í þjóðarskuldum. Hann segir að vegna þeirrar óvissu sem ríkir um hvað fæst fyrir eignir Landsbankans sé upphæðin sem verið sé að semja um óljós og af þeim ástæðum sé ótímabært að semja um lánskjör. Heimildir fréttastofu herma að ríkisstjórninni hafi boðist að kalla til Bucheit sem ráðgjafa fyrir íslensk stjórnvöld eftir hrunið síðastliðið haust en það var ekki gert. Höskuldur Þórhallsson þingmaður Framsóknar í fjárlaganefnd segir fráleitt að hann hafi ekki verið kallaður til fyrr. Elías Guðjónsson, upplýsingafulltrúi fjármálaráðuneytisins, sagði í samtali við fréttastofu að sú leið sem Bucheit lagði til, þ.e. að bíða með að semja um samningskjör þar til eignum þrotabús Landsbankans væri komið í verð, hafi verið lögð fram við Icesave samningaviðræðurnar, en hafnað af Bretum og Hollendingum. Guðbjartur Hannesson formaður fjárlaganefndar segist vona að Icesave frumvarpið verði afgreitt úr nefnd á morgun en hann virðist meira að segja fullur efasemda um frumvarpið.
Mest lesið Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Erlent Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Erlent Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Innlent Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Innlent Met í verðtryggðum lánveitingum lífeyrissjóðanna Innlent Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Erlent Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Innlent Landlæknir hlynnt því að banna ljósabekki Innlent „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Innlent Tugir látnir eftir eldsvoða í verslunarmiðstöð Erlent Fleiri fréttir Kristrún og von der Leyen í útsýnisflugi um eldgosið Landlæknir hlynnt því að banna ljósabekki Loftgæði mælast óholl á Akureyri Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Met í verðtryggðum lánveitingum lífeyrissjóðanna Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Sjá meira