Ný þjónusta: Dagleg skuldabréfavísitala 2. nóvember 2009 11:00 Valdimar Ármann hagfræðingur. Mynd/Anton
Frá og með deginum í dag mun visir.is birta daglega skuldabréfavísitölu dagsins. Vísitalan er unnin af GAM Management hf. (GAMMA) sem er óháð og sérhæft ráðgjafar- og sjóðastýringarfyrirtæki með starfsleyfi frá FME og heimild til fjárfestingarráðgjafar samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki. Eftir bankahrunið s.l. haust hrundi hlutabréfamarkaðurinn hérlendis og viðskipti á verðbréfamarkaðinum fóru að stórum hluta yfir í skuldabréf en veltan með þau nemur nú 8 til 22 milljörðun kr. á dag. Skuldabréfavísitalan frá GAMMA byggist á viðskiptum og veltu ríkisbréfa, íbúðabréfa og spariskírteina að uppfylltum nokkrum skilyrðum. Hún hefur nafnið GAMMA: Goverment Bond Index og mun kallast GBI vísitalan hér í viðskiptafréttunum. GBI vísitalan verður birt á visir.is í lok viðskipta á hverjum degi eins og úrvalsvísitala kauphallarinna (OMX16). Miðað er við lokagengi hvers dags eins og það er birt í kauphöllinni fyrir ríkisbréf, íbúðabréf og spariskírteini sem eru með viðskiptavakt í kauphöllinni. Samsetning vísitölunnar verður endurstillt fyrsta viðskiptadag hvers mánaðar til að taka mið af breytingum á markaðinum, það er bréf sem falla út og ný bréf sem koma inn. GAMMA segir að tilgangurinn með því að setja fram GBI vísitöluna sé að hingað til hafi engar vísitölur verið birtar um skuldabréfamarkaðinn sem auðvelt er að nálgast opinberlega. Af þeim sökum hafi verið erfitt að fylgjast með ávöxtun markaðarins. „Það hefur því verið illmögulegt að meta árangur skuldabréfa í samanburði við aðrar ávöxtunarleiðir svo sem innlána hlutabréfa, gjaldeyris og hrávara," segir Valdimar Ármann hagfræðingur hjá GAMMA. „Að sama skapi er ekki til opinber mælikvarði til að meta frammistöðu skuldabréfasjóða sem standa fjárfestum til boða á markaðinum. Því er erfitt að meta hvort virk stýring sjóðanna sé að skila umframávöxtun sem standi undir þóknun sjóðanna." Valdimar segir ennfremur að á gagnsæjum og skilvirkum markaði sé nauðsynlegt að auðvelt sé að vita hver ávöxtun heildarmarkaðarins er svo að samanburður sé fljótlegur og gagnlegur. Þessu er GBI vísitölunni ætlað að bæta úr.
Mest lesið Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Innkalla þurrmjólkina eftir allt saman Neytendur Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Ætluðu að nýta greidd sæti en fengu ekki Neytendur Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Neytendur Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira