Umsóknum synjað og kurr í greininni Sunna Sæmundsdóttir skrifar 14. apríl 2026 12:48 Sigríður Mogensen er sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins. Vísir/Einar Það færist í vöxt að nýsköpunarfyrirtækjum sé synjað um endurgreiðslur vegna rannsókna og þróunar að sögn sviðsstjóra hjá Samtökum iðnaðarins. Kallað er eftir því að stjórnvöld dragi úr óvissu og samtökin benda á að tækni- og hugverkafyrirtæki hafi á síðasta ári skilað þjóðarbúinu meiri útflutningstekjum en sjávarútvegurinn.
Útflutningstekjur fyrirtækja sem falla undir tækni- og hugverkaiðnað námu 369 milljörðum króna á síðasta ári, en það er um fimmtungur af heildar útflutningstekjum þjóðarinnar. Þar undir falla enda mörg verðmætustu fyrirtæki landsins líkt og JBT Marel og Alvotech auk Kerecis og CCP. Sigríður Mogensesn, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins, bendir á að útlflutningstekjurnar hafi áttfaldast frá árinu 2008. „Núna er greinin komin fram úr sjávarútvegi í útflutningstekjum, til að setja það í samhengi sem flestir Íslendingar skilja. Það gerðist árið 2025 í fyrsta sinn og greinin er nú í rauninni orðin þriðja stærsta útflutningsgrein Íslands,“ segir Sigríður. „Ef rétt verður á málum haldið, það er að segja ef starfsumhverfi þessara fyrirtækja verður áfram hvetjandi og fyrirsjáanlegt, að þá eru allar líkur á því að tækni- og hugverkaiðnaður verði verðmætasta atvinnugrein Íslands bara við loka þessa áratugar.“ Kerecis er eitt af mörgum verðmætum fyrirtækjum innan tækni- og hugverkaiðnaðarins.vísir/Anton Hún segir greinina hins vegar frammi fyrir óvissu um fyrirkomulag endurgreiðslna vegna rannsókna og þróunar. „Mörg fyrirtæki sem eru í djúpri nýsköpun og langtíma þróun, til dæmis lyfjaþróun, hátækniþróun og svokallaðri djúptækni, hafa verið að fá synjanir frá Rannís varðandi það að eiga rétt á skattafrádrætti sem fjárfestar, eigendur og aðrir sem koma að þessum fyrirtækjum og fjármögnun þeirra hafa verið að gera ráð fyrir. Ekki vegna þess að það sé sjálfgefið að eiga rétt á því heldur vegna þess að þetta eru einmitt félög sem við viljum styðja við og gæti orðið næstu einhyrningar Íslands.“ Hún bendir á að nýsköpunarfyrirtæki eigi oft í fjárhagsvanda á fyrstu árum starfseminnar, séu sjaldnast með tekjur og að brýnt sé að fyrirkomulagið verði skýrt og fyrirsjáanlegt. Samtökin hafi komið athugasemdum á framfæri við stjórnvöld í ljósi þess að unnið er að heildarenduskoðun á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki. „Þetta hefur verið valda ákveðinni óvissu og kurri í greininni en við erum bjartsýn á að það verði hægt að finna lausn á þessu,“ segir Sigríður.
Nýsköpun Mest lesið Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Viðskipti innlent Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Viðskipti innlent Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Spá óbreyttum vöxtum Viðskipti innlent Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Sjá meira