Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Lovísa Arnardóttir skrifar 13. apríl 2026 13:35 Tekjulægri eru ólíklegri en tekjuhærri til að telja líklegt að þau verði komin á rafbíl eftir fimm eða tíu ár. Vísir/Vilhelm Meirihluti launafólks innan ASÍ og BSRB á bíl eða hefur afnot af bíl eða níu af hverjum tíu en algengast er að fólk á tekjulágum heimilum eigi ekki bíl. Fimmtungur þeirra sem eiga bíl eiga rafmagnsbíl (19%) en langalgengast er að fólk á tekjuhærri heimilum eigi rafbíla.
Þegar þau sem eiga ekki rafmagnsbíla voru spurð hvort þau væru líkleg eða ólíkleg til að vera á rafmagnsbíl eftir fimm til tíu ár kom fram að tekjuhærri hópar töldu það líklegra en tekjulægri. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Vörðu um réttlát umskipti í samgöngum. Niðurstaða könnunar sýnir að mikill munur er á tækifærum fólks til að eignast rafbíla. Réttlát umskipti er hugtak notað til að lýsa hvernig umbreytingar á hagkerfum og samfélögum, í þá átt að gera þau grænni, þurfi að taka mið af því að þær séu réttlátar. Markmiðið með réttlátum umskiptum er að breytingar í samgöngum taki mið af og tryggi að þær leggist ekki þyngra á ákveðna hópa en aðra. Í tilkynningu um skýrsluna segir að algengustu ástæður þess að launafólk telji ólíklegt að það muni aka um á rafmagnsbíl eftir fimm til tíu ár séu annars vegar að slíkt ökutæki sé of dýrt og hins vegar að þau hafi ekki áhuga á að eiga rafmagnsbíl. Mun færri nefna samkvæmt tilkynningu aðrar ástæður á borð við þær að eiginleikar rafmagnsbíla henti þeim ekki, til dæmis vegna drægni, að það væri of mikil fyrirhöfn að hlaða rafbíl, koma upp hleðslustöð eða að hleðslunet hraðhleðslustöðva væri ekki nægilega gott. Innflytjendur jákvæðari í garð öðrum samgöngumátum Samkvæmt könnuninni, var launafólk búsett á höfuðborgarsvæðinu sem átti eða hafði bíl til afnota spurt hversu jákvætt eða neikvætt það væri gagnvart annars konar samgöngumáta en einkabíl. Niðurstöðurnar draga samkvæmt tilkynningu fram talsvert tvískipt viðhorf þar sem fjórir af hverjum tíu eru mjög eða frekar jákvæðir en þriðjungur er mjög eða frekar neikvæður. Innflytjendur eru jákvæðari en innfæddir gagnvart því að nota annars konar samgöngumáta en einkabíl en fólk í yngsta aldurshópnum, 30 ára eða yngri, er neikvæðast gagnvart því. Sjö af hverjum tíu sem voru mjög eða frekar neikvæð gagnvart því að nota annars konar samgöngumáta en einkabílinn sögðu það vera vegna langs ferðatíma. Auk þess sagði helmingur svarenda að það drægi úr lífsgæðum og frelsi, að leiðarkerfið væri ekki nógu gott og fjórir af hverjum tíu að almenningssamgöngur væru ekki áreiðanlegar. Tæplega helmingur innflytjenda er samkvæmt niðurstöðum neikvæður gagnvart því að nota annars konar samgöngumáta en einkabílinn vegna kostnaðar við almenningssamgöngur. Sama á við um fólk með lægri heimilistekjur samanborið við þau sem eru með hærri tekjur. Kostnaður helsta ástæða fyrir því að fólk er jákvætt Þá kemur fram í niðurstöðum að kostnaður við rekstur og viðhald bíls er algengasta ástæða þess að launafólk er jákvætt fyrir annars konar samgöngumáta en einkabíl. Sex af hverjum tíu þeirra sem voru mjög eða frekar jákvæðir gagnvart annars konar samgöngumáta en einkabíl nefndu að helsta ástæða þess væri hár kostnaður við rekstur og viðhald ökutækis. Einnig nefndi um þriðjungur megnun og streitu vegna umferðar. Konur og þau sem eru 30 ára og yngri voru líklegri en aðrir hópar til að vera jákvæðar gagnvart annars konar samgöngum en einkabíl vegna mengunar. Í skýrslunni er að finna ítarlega greiningu á niðurstöðum rannsóknarinnar. Skýrsluna má lesa í heild sinni hér. Varða – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins leggur árlega fyrir könnun meðal launafólks í aðildarfélögum ASÍ og BSRB. Í könnun Vörðu var spurt um bílaeign, rafbílaeign og hvort rafbílaeign væri líkleg á næstu árum. Auk þess var spurt um viðhorf launafólks til þess að nota annars konar samgöngumáta en einkabílinn og ástæður þess. Rannsóknin náði til félaga í aðildarfélögum Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og BSRB – heildarsamtaka stéttarfélaga starfsmanna í almannaþjónustu. Þetta er fimmta árið í röð sem könnun á lífsskilyrðum launafólks er gerð og hefur fjöldi svara aldrei verið meiri en nú þar sem tæplega 25.000 svör bárust.
Orkumál Bílar Vistvænir bílar Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Sjá meira