Ástarbréf Seðlabankans hafa þegar kostað 400 milljarða 11. desember 2009 14:57
Ríkisendurskoðun gagnrýnir mjög harðlega fyrrum bankastjóra Seðlabankans í nýrri skýrslu sinni um endurskoðun ríkisreiknings fyrir árið 2008. Sökum þess umfangsmikla taps sem ríkissjóður varð fyrir vegna svokallaðara „ástarbréfa" bankans er gerð sérstök grein fyrir því máli í skýrslunni. Fram kemur í skýrslunni að þegar hafi verið afskrifaðir 175 milljarðar kr. vegna bréfanna og af þeim 270 milljörðum kr. sem ríkið yfirtók frá Seðlabankanum séu aðeins trygg veð á bakvið 51 milljarð kr. Allar líkur eru því á að tapið í heild nemi um 400 milljörðum kr. „Fyrir liggur að hinir föllnu bankar öfluðu sér lausafjár með lánum frá minni fjármálafyrirtækjum sem aftur fengu lán frá Seðlabankanum gegn ótryggum veðum. Spyrja má hvers vegna Seðlabankinn brást ekki fyrr við þessum „leik'' bankanna og herti kröfur um veð gegn lánum til minni fjármálafyrirtækja. Að mati Ríkisendurskoðunar hefði þetta getað dregið úr því tjóni sem ríkissjóður og Seðlabankinn sátu uppi með eftir fall bankanna," segir í skýrslunni. Í skýrslunni segir að samkvæmt samkomulagi við Seðlabankann í lok desember 2008 yfirtók ríkissjóðurkröfur bankans vegna veðlána og daglána til fjármálafyrirtækja og var það gert til að tryggja viðunandi eiginfjárstöðu bankans. Heildarfjárhæð krafnanna nam 345 milljörðum kr. en við mat á áhættu var ákveðið að afskrifa strax í upphafi um 175 milljarða kr. og var sú fjárhæð gjaldfærð í ríkisreikningi 2008. Ríkissjóður greiddi fyrir þessi lán með því að gefa út og afhenda Seðlabankanum verðtryggt skuldabréf að fjárhæð 270 milljarða kr. Skuldabréfið ber 2,5% ársvexti. Sá hluti lánanna sem eftir stóð hjá bankanum, 75 milljarði kr., var færður til gjalda hjá honum sem útlánatöp í rekstrarreikningi. Þá voru einnig yfirtekin tryggingabréf vegna aðalmiðlara ríkisbréfa að fjárhæð 98 milljarðar kr. þar af voru 17 milljarðar kr. afskrifaðir strax og færðir til gjalda í ríkisreikningi. Þar sem framangreindir atburðir höfðu veruleg áhrif á útgjöld og skuldastöðu ríkissjóðs þykir Ríkisendurskoðun nauðsynlegt að gera ítarlega grein fyrir þeim atburðum og aðstæðum sem leiddu til þessarar niðurstöðu. Af þeim lánum sem ríkissjóður yfirtók má áætla að 51 milljarðar kr. sé með trygg veð en verðmæti annarra lána er óljóst. Það blasir því við að ríkissjóður og Seðlabankinn hafa orðið fyrir verulegu tapi vegna þeirra lánveitinga sem hér um ræðir. Hafa ber í huga að þær fjárhæðir sem hér koma fram miðast við árslok 2008. Eftir mikla þenslu á fjármálamörkuðum víða um lönd, sem m.a. var drifin áfram af gríðarmiklu framboði ódýrs lánsfjár, kom verulegur afturkippur í ársbyrjun 2007. Bankar víða um heim fóru að hafa auknar áhyggjur af útlánum, ekki síst vegna lána sem veitt voru til kaupa á fasteignum. Bæði kom þar til að fasteignaverð, sem hafði hækkað mjög fram að því, hrundi og í ljós kom að margir húsnæðiskaupendur höfðu ekki greiðslugetu til að standa undir lánum sínum. Óvissa skapaðist á fjármálamörkuðum og aðgangur að lánsfé varð takmarkaðri og dýrari. Í ágúst 2007 lokuðust síðan alþjóðlegir fjármagnsmarkaðir alveg fyrir lán til íslenskra eignarhaldsfélaga og íslenskra banka í útrás enda hækkaði svokallað skuldatryggingarálag þeirra mjög mikið. Bankakerfið hér á landi leitaði því í auknum mæli til Seðlabankans og fékk þar lán gegn veðtryggingum. Seðlabankinn leit á það sem lögbundið hlutverk sitt að veita innlendum fjármálastofnunum lausafjárfyrirgreiðslu eins og seðlabankar annarra ríkja voru að gera. Í samræmi við þetta veitti bankinn innlánsstofnunum umtalsverð veðlán. Fram hefur komið af hálfu forsvarsmanna bankans að hann taldi sér ekki heimilt að draga úr vexti bankakerfisins. Seðlabankinn sé „banki bankanna'' og eigi að sjá fjármálakerfinu fyrir lausafé til skamms tíma. Seðlabankinn leit því svo á að honum væri ekki stætt á öðru en að veita lán gegn veðum og anna þannig eftirspurn bankakerfisins eftir lausafé. Hins vegar liggur fyrir að ekkert hámark var á lánveitingunum svo lengi sem tryggingar voru veittar fyrir þeim. Seðlabankinn gat samkvæmt lögunum beitt eftirfarandi úrræðum til að draga úr vextinum: Bindiskylda: Úrræðið hefði virkað 2006 og 2007 að mati forsvarsmanna bankans en ekki eftir að markaðir lokuðust síðla árs 2007. Lausafjárreglur: Voru notaðar hér áður fyrr en bankarnir geta farið í kringum þær að mati Seðlabankans, t.d. með því að gera skiptasamninga. Snemma árs 2008 voru miklir erfiðleikar á krónumarkaði og gjaldeyrismarkaði. Af þessum sökum jókst eftirspurn viðskiptabankanna eftir veðlánum frá Seðlabankanum. Samkvæmt tölum frá bankanum jukust veðlán á tímabilinu 1. janúar til 1. Október 2008 úr 302 milljarði kr. í 502 milljarða kr. Mikið bar á krossveðum í tengslum við þessar lánveitingar en þau felast í því að lántaki býður veð í verðbréfum sem annar aðili gefur út. Seðlabankinn gefur út sérstakar reglur um viðskipti fjármálafyrirtækja við bankann. Þar eru m.a. gerðar kröfur um gæði þeirra veðtrygginga sem bankinn tekur gildar á móti lánum. Fjármálafyrirtæki getur fengið lán frá bankanum gegn veði í ótryggðu skuldabréfi eða bréfum en þá má lánshæfismat þess ekki vera lægra en A‐. Með ótryggðum bréfum er hér átt við skuldabréf sem fjármálafyrirtæki gefa út án trygginga og skrá á verðbréfamarkað hér á landi. Vegna þess hve lausafjárstaða viðskiptabankanna var slæm á síðasta ári treysti Seðlabankinn sér framan af ekki til þess að herða lána‐ og tryggingarskilmála sína. Í ágúst 2008 var þetta þó gert og var þá stefnt að því að ótryggð bréf mættu ekki vera meira en 50% af heildarverðmæti veðtrygginga hvers fjármálafyrirtækis. Þessu markmiði átti að ná í árslok 2008. Þegar reglugerðin var sett mátti finna dæmi þess að á bak við meirihluta eða jafnvel öll lán til vissra fjármálafyrirtækja væru ótryggð bréf. Í þessu sambandi má geta þess að samtals námu ótryggð bréf sem lögð voru fram gegn lánum til Sparisjóðabankans 142 milljarði kr. við fall bankanna eða um 42% af heildarfjárhæð þeirra lána (án vaxta) sem ríkissjóður yfirtók. Lánin voru tryggð með veði í verðbréfum útgefnum af Kaupþingi, Landsbankanum og Glitni.
Mest lesið Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Viðskipti innlent Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Viðskipti innlent Orkan og Samkaup fá grænt ljós á sameiningu Viðskipti Slæm vinnustaðamenning: Minni afköst, verri frammistaða, fleiri fjarvistir Atvinnulíf Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Viðskipti innlent Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Viðskipti innlent Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Viðskipti innlent Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Viðskipti innlent Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Sjá meira