„Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Árni Sæberg og Telma Tómasson skrifa 20. febrúar 2026 16:52 Sigurður Hannesson er framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Vísir/Vilhelm Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir nýjan kafla vera kominn í sögu tolla Donalds Trump Bandaríkjaforseta, eftir að Hæstiréttur Bandaríkjanna dæmdi þá flesta ólögmæta í dag. Óvissa um tollana sé síst minni eftir dóminn.
Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi í dag úr gildi stóran hluta þeirra tolla sem Donald Trump forseti hefur lagt á innfluttar vörur síðasta árið. Þeir tollar sem byggja á neyðarlögum eru taldir ólöglegir. Niðurstaðan er sögð meiriháttar áfall fyrir Trump en hann hefur beitt tollum, og hótunum um að beita ríki þeim, í gríð og erg frá því að hann tók aftur við sem forseti í fyrra. Margir tollanna byggðust á ákvæðum laga um valdheimildir forseta í efnahagsneyð. Sex af níu dómurum við hæstarétt töldu Trump ekki mega beita lögunum til þess að leggja tollana á. Tollar á Ísland undir Á meðal þeirra tolla sem hæstiréttur telur ólöglega eru svonefndir „gagnkvæmir“ tollar Bandaríkjastjórnar á önnur ríki, þar á meðal Ísland. Trump tilkynnti um þá í apríl en hefur ítrekað krukkað í þeim og hótað frekari tollum síðan. Samtök iðnaðarins hafa látið tollamálið sig varða frá því að það kom upp og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri samtakanna, segir í samtali við fréttastofu þau hafi fylgst náið með framvindunni í dag. „Það má segja að það sé kominn nýr kafli í þessa sögu og óvissan sem ríkt hefur, hún heldur þá bara áfram. Hinn pólitíski vilji hefur verið skýr hjá bandarískum yfirvöldum um að leggja á tolla, þannig að þetta þýðir væntanlega að það þarf að hugsa um breytta framkvæmd eða breytta útfærslu til þess að ná fram þeim markmiðum en það má alveg reikna með því að það verði áframhald á þessum tollum.“ Bíða viðbragða Trumps Sigurður segir menn nú bíða eftir yfirlýsingu Bandaríkjaforseta og hans viðbrögðum við dómi Hæstaréttar. „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B og muni þá senn kynna það, eða gefa einhverjar vísbendingar að minnsta kosti um það hvernig ný útfærsla kunni að verða.“ Á meðan óvissan sé eins mikil og hún er nú verði að bíða eftir viðbrögðum úti, sjá hvert umfangið verður, nákvæm útfærsla tollanna og framkvæmd þeirra. „Það er svolítið erfitt að ráða í stöðuna núna en þetta, auðvitað, setur talsvert mikið strik í reikninginn fyrir bandarísk stjórnvöld, þessi dómur.
Skattar, tollar og gjöld Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Viðskipti innlent Flestir Trump-tollarnir dæmdir ólöglegir Viðskipti erlent Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Viðskipti innlent Nova kaupir Ofar Viðskipti innlent Allt á uppleið á Grundartanga Viðskipti innlent „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Viðskipti innlent Einn stofnenda ASOS fannst látinn Viðskipti erlent Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Neytendur Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Viðskipti innlent Engin viðvarandi markaðssetning frá 2023 Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Engin viðvarandi markaðssetning frá 2023 Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Allt á uppleið á Grundartanga Nova kaupir Ofar Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Sölvi genginn til liðs við KAPP Líklegra en áður að nýjar íbúðir seljist undir ásettu verði Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Arkitektar og verkfræðingar vænta samdráttar á íbúðamarkaði Prófessor slær á áhyggjuraddir 74 prósent íbúða seldist á undirverði í desember Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Hæstiréttur gefur ÁTVR á baukinn Kristín í Komið gott fær sér dagvinnu Skiptastjóri Play þarf að víkja Innkalla brúna rúllutertu Taka Amaroq af markaði í Kanada Ríkið niðurgreiddi losun Icelandair um rúmar 400 milljónir Deilt um kjör Wolt-sendla Síminn tekur upp nýtt nafn og hagnast um 1,6 milljarða Ólafur Björnsson ráðinn fjármálastjóri Inchcape á Íslandi Loka Duck & Rose á sunnudaginn „Vel skipulögð herferð“ gegn ETS-losunarkerfinu Þóra og Eva sameinaðar á ný í Efstaleitinu Erla Ósk nýr formaður Jafnvægisvogarráðs Sjá meira