Festa kaup á hugbúnaðarfyrirtækinu Evolv Atli Ísleifsson skrifar 25. febrúar 2026 13:26 Hildur Einarsdóttir forstjóri Advania ásamt Sigurði Davíð Stefánssyni og Eyþóri Loga Þorsteinssyni, stofnendum Evolv. Birgir Ísleifur Advania hefur fest kaup á íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu Evolv sem sérhæfir sig í sjálfvirknivæðingu.
Í tilkynningu segir að Evolv hafi þróað og innleitt lausnir sem nýti stafrænt vinnuafl til að auka skilvirkni og gæði og hafi frá stofnun þess árið 2020 þjónustað fjölda fyrirtækja og stofnana, þvert á starfssvið. Haft er eftir Hildi Einarsdóttur, forstjóra Advania, að kaupin marki mikilvægan áfanga í áframhaldandi framsækni Advania og það sé mikið gleðiefni að fá jafnöflugt félag og Evolv til liðs við Advania. „Evolv hefur skapað sér trausta stöðu á sínu sérsviði sem byggir á öflugri nýsköpun og fyrsta flokks þjónustuveitingu,“ segir Hildur. Með kaupunum er Advania sagt stíga mikilvægt skref í þeirri stefnu að vera öflugur samstarfsaðili á sviði sjálfvirknivæðingar á evrópskum markaði. Hjá Evolv starf um þrjátíu sérfræðingar með bakgrunn í þróun og víðtæka reynslu af innleiðingu lausna og stuðningi við starfsfólk við að hámarka ávinning sjálfvirknivæðingar. Sérfræðingar Evolv verða eftir samrunann hluti af teymi sex hundruð sérfræðinga Advania á Íslandi. Kaup Advania á Evolv eru háð skilyrðum um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Í tilkynningunni er enn fremur haft eftir Eyþóri Loga Þorsteinssyni, stofnanda Evolv, að þau séu gríðarlega spennt fyrir því að ganga til liðs við Advania. „Frá fyrsta degi hefur metnaður okkar hjá Evolv verið að leiða þróun snjallrar sjálfvirknivæðingar og hjálpa fyrirtækjum að nýta til fulls möguleika sjálfvirkra lausna. Fram undan eru stór tækifæri í heimi sjálfvirknivæðingar,“ segir Eyþór Logi. Þá segir Sigurður Davíð Stefánsson, stofnandi Evolv, að þetta sé mikil viðurkenning á þeirri vinnu sem teymið hafi lagt í uppbyggingu félagsins og þeim árangri sem náðst hafi á undanförnum árum. „Viðskiptavinir okkar munu njóta góðs af breiðari tæknilegri getu, auknum stuðningi og aðgengi að sterku samstarfsneti, meðal annars á sviði kjarnakerfa, gervigreindar, skýjalausna og gagnavinnslu. Með þessu leggjum við traustan grunn að næsta kafla og opnum á ný tækifæri fyrir bæði viðskiptavini og starfsfólk.“
Kaup og sala fyrirtækja Upplýsingatækni Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira