Denver Nuggets í vandræðum - höllin upptekin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. maí 2009 11:45 Denver liðið hefur staðið sig frábærlega í úrslitakeppninni í ár. Mynd/GettyImages
Árangur Denver Nuggets í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta hefur komið mörgum á óvart og engum meira en eiganda sínum og umsjónarmönnum Pepsi Center, heimahallar liðsins. Höllin er nefnilega upptekin á mánudagskvöldið þegar Denver á að spila á móti Los Angeles Lakers í fjórða leik liðanna í úrslitum Vesturdeildarinnar. Það eru fjölbragðaglímumenn sem hafa bókað höllina næsta mánudag en það hefur verið ljóst síðan 15. ágúst að þeir ætluðu að halda mikla sýningu þennan dag. Glímukapparnir eru þegar búnir að að selja tíu þúsund miða og búast við fullu húsi. Bandarískir fjölmiðlar gera sér mat úr því að eigandi Denver hafi nú ekki haft mikla trú á sínu liði enda búinn að horfa upp á liðið sitt detta út úr fyrstu umferð úrslitakeppninnar fimm ár í röð. Denver-liðið hefur hinsvegar smollið saman í vetur og er nú komið í úrslit Vesturdeildarinnar í fyrsta sinn síðan árið 1985. NBA-deildin hefur aðeins gefið það út að leikurinn fari fram 25. maí næstkomandi og að forráðamenn Denver-liðsins og fjölbragðaglímukapparnir verði bara að koma sér saman um lausn á þessu vandamáli.
NBA Mest lesið Sagði bíl Red Bull vera algjörlega óökuhæfan Formúla 1 Þrenna á föstudagskvöldi og háskólagráða á laugardegi Íslenski boltinn Englendingar Evrópumeistarar eftir framlengdan leik Fótbolti Stelpurnar okkar mættar í paradísina Fótbolti Chelsea áfram eftir tveggja klukkutíma töf og framlengingu Fótbolti Einhenta undrið ekki í NBA Körfubolti FH-ingar flytja Kaplakrika í Laugardalinn Fótbolti Leikur Chelsea og Benfica blásinn af Fótbolti „Versta hugmynd sem hefur komið fram“ Fótbolti Dagskráin í dag: Besta deildin og Formúla 1 Sport Fleiri fréttir Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Sjá meira