Innlent

Berserkir á fíkniefnum fóru ránshendi um Akranes

Tveir ungir menn undir áhrifum fíkniefna gengu berserksgang á Akranesi í nótt. Þeir brutu rúður í bílum, vinnuvélum og atvinnuhúsum og brutust svo inn í vinnuskúr. Þar stálu þeir ýmsu lauslegu og voru með það í stórum ruslapokum þegar lögregla hafði hendur í hári þeirra.

Það voru vitni, sem gerðu lögreglu viðvart, en áræddu ekki að aðhafast frekar því mikill fyrirgangur var í mönnunum, sem báðir hafa áður gerst brotlegir við lög. Þeir sofa nú úr sér vímuna í fangageymslum og verða yfirheyrðir í dag.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×