Makríllinn dreifður um alla lögsöguna 12. ágúst 2009 03:30 Ak Ingunn, sem er í eigu HB Granda, er eitt þeirra skipa sem hafa þurft að færa sig sífellt norðar á síldarmiðunum vegna makrílgangna. Mynd/Óskar
Umfangsmestu rannsóknir á makrílgöngum á hafsvæðinu við Ísland og á Norður-Atlantshafi eru langt komnar. Rannsóknirnar eru tilkomnar vegna deilna um útbreiðslu makríls hér við land og rétt Íslendinga til veiða úr stofninum. Niðurstaða þeirra mun liggja fyrir í september en ljóst er að mikið er af makríl víða í íslensku lögsögunni. Íslensku uppsjávarveiðiskipin, sem eru við veiðar á norsk-íslenskri síld á Austfjarðamiðum, hrökklast sífellt norðar undan makríltorfunum. Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra gaf út reglugerð í júlí um bann við beinum makrílveiðum þar sem 112 þúsund tonna kvóti Íslendinga var þá langt kominn. Ástæðan var sú að nauðsynlegt er að halda eftir hluta kvótans sem veiðist sem meðafli í veiðum á síld. Þetta er til marks um hversu mikill makríll er á miðunum. Alls koma fimm rannsóknaskip frá Noregi, Færeyjum og Íslandi að rannsókninni. Svæðið sem kannað er nær frá hafsvæðinu við Svalbarða austur í norsku lögsöguna og suður undir Færeyjar. Þá eru makrílgöngurnar kannaðar víðast hvar innan íslensku fiskveiðilögsögunnar. Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri nytjastofnasviðs Hafrannsóknastofnunarinnar, segir að rannsóknirnar nú séu þær langviðamestu sem nokkru sinni hefur verið lagt í, og staðfestir að makríll hafi fundist á öllu því svæði sem íslenska hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson hefur rannsakað að undanförnu. Skipið hefur kannað stórt svæði fyrir Suður- og Vesturlandi. „Okkar gögn verða sameinuð við gögn frá Norðmönnum og Færeyingum þegar okkar rannsóknir eru búnar. Þá fáum við vitneskju um dreifinguna.“ Tilurð rannsóknarinnar nú er tvíþætt. Líffræðilega er nauðsynlegt að fá upplýsingar um makrílgöngurnar en einnig er ágreiningur um skiptingu á makrílkvóta. „Við vitum hvar makríllinn er á vorin við hrygningu en ágreiningurinn er um hvernig hann er að dreifa sér í Norður-Atlantshafi yfir sumarið,“ segir Þorsteinn. Íslenskir útvegsmenn kosta jafnframt leiðangur Hoffells SU 80 frá Fáskrúðsfirði. Páll Rúnarsson skipstjóri segir að vart hafi orðið við makríl bæði djúpt og grunnt suðaustur af landinu. Nú berast fréttir af því að uppsjávarskipin sem stunda síldveiðar fyrir austan hafi hrökklast djúpt norður fyrir land vegna of hás hlutfalls makríls í síldaraflanum.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Fleiri fréttir „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Sjá meira