Kært og mótmælt 17. desember 2009 06:00 Þorsteinn Sch. Thorsteinsson skrifar um bóluefni gegn svínaflensu. Fjöldinn allur af kærum hefur verið lagður fram víða um heim gegn svínaflensubóluefninu. Læknar, áhugamenn og fjölskyldur, sem orðið hafa fyrir skaða af völdum bóluefnisins, hafa kært og mótmælt. Helsta ástæðan fyrir því að ég lagði fram kæru gegn bóluefninu, var sú að ég gat ekki sætt mig við að Landlæknisembættið skyldi velja þetta áhættusama bóluefni fram yfir önnur. Embættið hefur að auki ekkert fjallað um áhrif efnasambandsins skvalen (e. squalene) sem finna má í bóluefninu, aukaverkanir þess og sjúkdómum sem það getur valdið. Það er munur á hvort efninu er sprautað inn í líkamann eða innbyrt. Skvalen má meðal annars finna í hákarlalýsi; munurinn á því hvort hákarlalýsi sé gott eða slæmt fyrir líkamann veltur á því hvort því sé sprautað eða borðað. Sé skvalen sprautað inn í líkamann gerir ónæmiskerfið árás á allt sem flokkast undir skvalen, ekki eingöngu það sem var sprautað heldur líka skvalen sem finna má í heilanum og taugakerfinu. Á þetta hafa sérfræðingar á borð við Joseph Mercola, Russell Blaylock, Rima Laibow og fleiri bent á. Rannsóknir sýna að skvalen getur líka framkallað gigt hjá rottum (sjá American Journal of Pathology, (2000). Hákarlalýsi var tekið af lyfjaskrá og bannað í Bandaríkjunum vegna mála sem komu upp í sambandi við bóluefnið gegn miltisbrandi. Lengi vel neituðu yfirvöld því að skvalen hefði verið í bóluefninu, en nú hafa þau viðurkennt það. Bandarískir hermenn sem bólusettir voru gegn miltisbrandi í Persaflóastríði fengu einmitt gigt, höfuðverk, svima og útbrot og þjáðust af minnisleysi, þunglyndi og svefntruflunum svo eitthvað sé nefnt. Ein af mörgum andstæðingum svínaflensubóluefnisins sem inniheldur skvalen er dr. Rima Laibow læknir, sem fullyrðir að bóluefnið gegn svínaflensu innihaldi skvalen sem sé milljón sinnum sterkara en í bóluefninu gegn miltisbrandi og mun verra. Jafnvel fáein mólekúl af skvaleni geta valdið því að líkaminn gerir árás á sjálfan sig. Dr. Friedel Rohr er þekktur þýskur læknir. Hann hefur kært þýska heilbrigðisráðuneytið og segir að það sé mikil blekking í gangi; almenningi sé ekki sagt frá áhættunni sem fylgi skvalen. Um 30% af þeim sem hafa verið bólusettir eigi eftir að glíma við vandamál. Það hefði verið betra að velja annað bóluefni en það sem landlæknisembættið valdi, efni sem inniheldur ekki skvalen. Höfundur er margmiðlunarfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar