Skoðun

Kært og mótmælt

Þorsteinn Sch. Thorsteinsson skrifar um bóluefni gegn svínaflensu.

Fjöldinn allur af kærum hefur verið lagður fram víða um heim gegn svínaflensubóluefninu. Læknar, áhugamenn og fjölskyldur, sem orðið hafa fyrir skaða af völdum bóluefnisins, hafa kært og mótmælt. Helsta ástæðan fyrir því að ég lagði fram kæru gegn bóluefninu, var sú að ég gat ekki sætt mig við að Landlæknisembættið skyldi velja þetta áhættusama bóluefni fram yfir önnur. Embættið hefur að auki ekkert fjallað um áhrif efnasambandsins skvalen (e. squalene) sem finna má í bóluefninu, aukaverkanir þess og sjúkdómum sem það getur valdið.

Það er munur á hvort efninu er sprautað inn í líkamann eða innbyrt. Skvalen má meðal annars finna í hákarlalýsi; munurinn á því hvort hákarlalýsi sé gott eða slæmt fyrir líkamann veltur á því hvort því sé sprautað eða borðað. Sé skvalen sprautað inn í líkamann gerir ónæmiskerfið árás á allt sem flokkast undir skvalen, ekki eingöngu það sem var sprautað heldur líka skvalen sem finna má í heilanum og taugakerfinu. Á þetta hafa sérfræðingar á borð við Joseph Mercola, Russell Blaylock, Rima Laibow og fleiri bent á.

Rannsóknir sýna að skvalen getur líka framkallað gigt hjá rottum (sjá American Journal of Pathology, (2000). Hákarlalýsi var tekið af lyfjaskrá og bannað í Bandaríkjunum vegna mála sem komu upp í sambandi við bóluefnið gegn miltisbrandi. Lengi vel neituðu yfirvöld því að skvalen hefði verið í bóluefninu, en nú hafa þau viðurkennt það. Bandarískir hermenn sem bólusettir voru gegn miltisbrandi í Persaflóastríði fengu einmitt gigt, höfuðverk, svima og útbrot og þjáðust af minnisleysi, þunglyndi og svefntruflunum svo eitthvað sé nefnt.

Ein af mörgum andstæðingum svínaflensubóluefnisins sem inniheldur skvalen er dr. Rima Laibow læknir, sem fullyrðir að bóluefnið gegn svína­flensu innihaldi skvalen sem sé milljón sinnum sterkara en í bóluefninu gegn miltisbrandi og mun verra. Jafnvel fáein mólekúl af skvaleni geta valdið því að líkaminn gerir árás á sjálfan sig. Dr. Friedel Rohr er þekktur þýskur læknir. Hann hefur kært þýska heilbrigðisráðuneytið og segir að það sé mikil blekking í gangi; almenningi sé ekki sagt frá áhættunni sem fylgi skvalen. Um 30% af þeim sem hafa verið bólusettir eigi eftir að glíma við vandamál. Það hefði verið betra að velja annað bóluefni en það sem landlæknisembættið valdi, efni sem inniheldur ekki skvalen.

Höfundur er margmiðlunarfræðingur.




Skoðun

Skoðun

Vegið að ís­lenska líf­eyris­kerfinu

Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar

Sjá meira


×