Kraftmikill og traustur forystumaður Kristinn Jónasson skrifar 3. mars 2009 11:36 Sjálfstæðisflokkurinn í NV-kjördæmi hefur ákveðið að viðhafa prófkjör til að velja fólk á listann fyrir alþingiskosningarnar í vor. Fjöldi afar hæfra einstaklinga hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjörinu. Ljóst er að mikil endurnýjun verður á efstu sætum á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu. Sturla Böðvarsson sem leitt hefur listann hefur nú ákveðið að hætta þingmennsku og við það losnar forystusætið. Ásbjörn Óttarsson forseti bæjarstjórnar í Snæfellsbæ hefur ákveðið að sækjast eftir forystusæti listans og er það mat mitt að þar fari mjög hæfur maður til foystu. Ásbjörn hefur setið í bæjarstjórn Snæfellsbæjar frá árinu 1994 og þar af verið forseti bæjarstjórnar frá 1998 eða í 11 ár. Samhliða störfum sínum fyrir sveitarfélagið hefur hann stundað sjómennsku og útgerð. Ásbjörn hefur gegnt mörgum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn síðastliðin 30 ár og nú síðast var hann formaður uppstillingarnefndar fyrir alþingiskosningarnar 2007. Hann hefur einnig gegnt mörgum trúnaðarstörfum fyrir sveitarfélög á Vesturlandi þann tíma sem hann hefur setið í sveitarstjórn. Þar að auki hefur hann verið virkur meðlimur í Lionsklúbbi Nesþinga í áratugi. Okkar kynni hófust af alvöru þegar undirritaður var kosningastjóri Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 1998 og í framhaldi af því tók ég að mér starf bæjarstjóra í Snæfellsbæ. Eins og liggur í augum uppi þá eru mjög mikil samskipti milli bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar og hafa samskipti mín við Ásbjörn þroskað mig mjög mikið. Ásbjörn er afar ákveðinn, heiðarlegur, traustur og ekki síst duglegur maður sem vill að hlutirnir gangi hratt og örugglega fyrir sig. Hann er mjög næmur á sitt samfélag og held ég að það sé engin tilviljun að Sjálfstæðisflokurinn í Snæfellsbæ hefur síðustu þrjár kosningar fengið um 60% atkvæða undir forystu Ásbjarnar. Þeir sem þekkja Ásbjörn vita að þar fer afar vandaður maður sem hægt er að treysta og hitt sem ekki skiptir minna máli að hann er afar hreinskiptinn og lætur verkin tala. Það að vera með eigið fyrirtæki og þurfa að standa skil á slíkum rekstri, vera forystumaður í sveitarstjórn og vera virkur í félagsmálum segir margt um manninn. Það er ekki nóg að tala og lofa öllu fögru menn verða að standa við það sem þeir segja og fullyrði ég að það orðspor sem af Ásbirni fer sæmir hverjum manni sem sækist eftir forystu. Ég er ákaflega ánægður með að Ásbjörn gefi kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í NV- kjördæmi og engum treysti ég betur til að fylgja eftir málefnum okkar sem í kjördæminu búa. En til þess að svo geti orðið þá hvet ég alla þá sem eiga þess kost að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins þann 21. mars nk. að setja Ásbjörn í fyrsta sætið okkur öllum til heilla. Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Alræmdur faðir stígur fram Atli Heiðar Gunnlaugsson Skoðun Halldór 23.05.2026 Halldór Lýðræðislegt, sanngjarnt, gott Alex Leó Kristinsson Skoðun Dagur og Diljá - dómur er fallinn Halldór Jörgen Olesen Skoðun Hvað myndir þú gera við auka milljón á ári? Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Líffræðileg fjölbreytni og sveitarfélög Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Skúli Skúlason Skoðun Það er gott að vera kristinn, en slæmt þegar fáfræðin fær að ráða för María Gunnarsdóttir Skoðun Hundrað milljarða loforð Dags Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Enginn kaus Bjarna eða Brynjar Gunnar Salvarsson Skoðun Norður-Kórea, íslensk stjórnmál og raunveruleikinn Mía Marselína Alexa Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Friður á Segulfirði Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Vindorkan – ný fjármálabóla í ríkjum ESB? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Skipulag, ábyrgð og meirihlutamyndun Marta Rut Ólafsdóttir,Lárus Jónsson skrifar Skoðun Enginn kaus Bjarna eða Brynjar Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Hvað myndir þú gera við auka milljón á ári? Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Galin skattheimta ríkisstjórnarinnar Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Fyrst upplýsingar og stöðugleiki, svo má kjósa Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Króatar og ávextir ESB-aðildar Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Þegar hlutverkin deyja og sjálfið vaknar Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Dagur og Diljá - dómur er fallinn Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Styrkur í fjárfestingu í sjávarútvegi Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Það er gott að vera kristinn, en slæmt þegar fáfræðin fær að ráða för María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Alþjóðasamstarf í umhverfismálum er ekki háð Evrópusambandsaðild Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Norður-Kórea, íslensk stjórnmál og raunveruleikinn Mía Marselína Alexa Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Stóreflum námsefnisgerð í íslenska skólakerfinu Magnús Þór Jónsson,Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hundrað milljarða loforð Dags Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Líffræðileg fjölbreytni og sveitarfélög Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Skúli Skúlason skrifar Skoðun Nokkur orð um einföldun eftirlits Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fólkið fær að ráða för Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Alræmdur faðir stígur fram Atli Heiðar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Lýðræðislegt, sanngjarnt, gott Alex Leó Kristinsson skrifar Skoðun Nei, ég vil ekki vinna með þér! Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Þrefölda svipa verðtryggingar á Íslandi Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver borgar brúsann? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hvaða áhrif hefði ESB-aðild á verðbólguna? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Er aithingi.is hættulegt lýðræðinu? Kristján Logason skrifar Skoðun Rafbyssugríman er fallin Þórhildur Sunna Ævarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju upplifa sumir kjósendur fjarlægð frá Samfylkingunni? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Launastefna Seðlabankans: Hverjir sitja eftir? Ingvar Freyr Ingvarsson,Sigrún Brynjarsdóttir skrifar Skoðun Ár í eldlínunni Einar Bárðarson skrifar Sjá meira
Líffræðileg fjölbreytni og sveitarfélög Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Skúli Skúlason Skoðun
Skoðun Það er gott að vera kristinn, en slæmt þegar fáfræðin fær að ráða för María Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Norður-Kórea, íslensk stjórnmál og raunveruleikinn Mía Marselína Alexa Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Stóreflum námsefnisgerð í íslenska skólakerfinu Magnús Þór Jónsson,Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Líffræðileg fjölbreytni og sveitarfélög Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Skúli Skúlason skrifar
Skoðun Nokkur orð um einföldun eftirlits Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Launastefna Seðlabankans: Hverjir sitja eftir? Ingvar Freyr Ingvarsson,Sigrún Brynjarsdóttir skrifar
Líffræðileg fjölbreytni og sveitarfélög Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Skúli Skúlason Skoðun