Mikilvægur hlekkur í keðjunni 8. desember 2009 06:00 Fanný Gunnarsdóttir skrifar um dagforeldra Dagforeldrar í Reykjavík bjóða foreldrum yngstu borgaranna upp á raunhæfan valkost, daggæslu í öruggu umhverfi. Margir foreldrar sjá dvöl hjá dagforeldri sem heimilislega og mjúka aðlögun ungbarna að dagvistarkerfi borgarinnar. Það er yfirlýst stefna leikskólaráðs að styrkja og efla dagforeldra í starfi og standa vörð um dagforeldra sem raunhæfan valkost þegar kemur að því að velja dagvistun fyrir yngstu börnin í borginni. Tæplega 170 dagforeldrar starfa í borginni og sinna sínu starfi af kostgæfni, og hjá þeim dvelja tæplega 600 börn. Þeir hafa sótt sérstök námskeið, starfa eftir útgefinni reglugerð frá félagsmálaráðuneyti og hafa viðurkennt starfsleyfi. Sérstakt eftirlit er með störfum dagforeldra í Reykjavík og á það að tryggja sem besta þjónustu og öryggi barnanna. Einnig starfa á þjónustumiðstöðvum borgarinnar daggæsluráðgjafar sem eru bæði dagforeldrum og foreldrum til aðstoðar og ráðgjafar. Skráning barna hjá dagforeldrum fer jöfnum höndum fram í gegnum daggæsluráðgjafana og beint án milliliða hjá dagforeldrum. Upplýsingar um dagforeldra í Reykjavík er því bæði hægt að nálgast á heimasíðu Leikskólasviðs og á síðu félags dagforeldra sem vistuð er á barnaland.is en margir dagforeldrar halda úti eigin heimasíðu. Stefnt er að því að í framtíðinni verði hægt að skrá og velja dagforeldra í gegnum rafræna Reykjavík á svipaðan hátt og þegar börn eru skráð á leikskóla.Mikil ánægja foreldraDagforeldrar búa yfir mikilli dýrmætri reynslu af umönnun ungra barna. Foreldrar og ung börn hér í Reykjavík eru heppin að hafa val um mjög færa dagforeldra með langa starfsreynslu. Í reglulegum könnunum sem Leikskólasvið leggur fyrir foreldra barna hjá dagforeldrum kemur fram mikil ánægja með þjónustuna og eru þá sérstaklega nefnd persónuleg tengsl og heimilislegt umhverfi. Í síðustu könnun, sem framkvæmd var haustið 2008, svöruðu yfir 90% foreldranna því til að þau væru mjög eða frekar ánægð með þjónustuna sem dagforeldrarnir veita. Einnig kom fram í könnuninni að flestir foreldrar fengu upplýsingar um dagforeldrið hjá vinum eða fjölskyldu. Gott orðspor dagforeldris gengur því mann frá manni. Í könnun sem lögð var fyrir dagforeldra sumarið 2008 sést að þeir eru ánægðir með þá þjónustu sem leikskólasvið veitir og með það eftirlitskerfi sem er við lýði. Breyttar aðstæðurNú um stundir er ekki hægt að horfa framhjá því að atvinnuástand hefur breyst í borgininni, leikskólar eru nú fullmannaðir og fullnýttir og geta því tekið inn aukinn fjölda yngri barna. Auk þess hafa foreldrar kosið að nýta sér þjónustutryggingu sem foreldrum ungra barna hefur staðið til boða. Breytt ástand hefur óneitanlega haft þau áhrif að þeim börnum hefur fækkað sem njóta þjónustu dagforeldra og fækkað hefur í hópi dagforeldra. Því verða dagforeldrar að skerpa ásýnd sína og sérstöðu. Allt frá upphafi þessa kjörtímabils hefur verið starfandi sérstakur stýrihópur um starfsumhverfi dagforeldra en málefni þeirra falla undir verksvið leikskólaráðs. Í vinnuhópnum eiga m.a. sæti pólitískir fulltrúar tilnefndir af leikskólaráði og fulltrúar dagforeldra, auk starfsfólks frá Leikskólasviði. Unnið hefur verið að gerð samnings eða ramma um störf dagforeldra í borginni sem á bæði að skýra og skerpa starfshætti þeirra og styðja við faglegt starf. Jafnframt er komið til móts við ýmsar óskir dagforeldra hvað varðar starfsumhverfi þeirra. Það er eðlilegt verklag að utan um eins stórt og kostnaðarsamt kerfi og dagforeldrakerfið í Reykjavík er séu formlegar verklagsreglur, en á síðasta ári greiddi borgin rúmlega 400 milljónir í niðurgreiðslur. Nú er borgarlögmaður að yfirfara fyrirliggjandi samning en þegar þeirri vinnu er lokið sér fyrir endann á vinnu hópsins og er það vel. Við gerð væntanlegrar fjárhagsáætlunar og starfsáætlunar fyrir næsta ár er kappkostað að verja störf dagforeldra og það er trú okkar og von að væntanlegur samningur á milli dagforeldra og borgarinnar verði eitt lóð á þá vogarskál. Reynum að tryggja að þrátt fyrir tímabundnar þrengingar og atvinnuleysi geti dagforeldrar boðið upp á örugga og öfluga þjónustu. Höfundur er varaformaður leikskólaráðs og formaður stýrihóps um málefni dagforeldra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tengdar fréttir Pollamótatímabilið er hafið Það er synd að segja að leiðir að næststærsta íþróttahúsi landsins séu greiðar. Egilshöllin hafði ekki beinlínis heillað mig til aðsóknar, fyrri tilraunir enduðu í stórkostlegri umferðarteppu þar sem lagt var við grunn Korputorgs og svo öslað yfir mýrar og skurði til að komast að hinu mikla húsi. Nú var þó akfært hjá görðum Grafarvogsbúa, húsgörðum, gömlum kartöflugörðum og kirkjugarði. Það var kalt í lofti og keppnismaður í baksætinu var að hefja mótaferil sinn í réttum búningi, sokkum og öllu saman. 8. desember 2009 06:00 Mest lesið Halldór 03.10.2026 Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Pollamótatímabilið er hafið Það er synd að segja að leiðir að næststærsta íþróttahúsi landsins séu greiðar. Egilshöllin hafði ekki beinlínis heillað mig til aðsóknar, fyrri tilraunir enduðu í stórkostlegri umferðarteppu þar sem lagt var við grunn Korputorgs og svo öslað yfir mýrar og skurði til að komast að hinu mikla húsi. Nú var þó akfært hjá görðum Grafarvogsbúa, húsgörðum, gömlum kartöflugörðum og kirkjugarði. Það var kalt í lofti og keppnismaður í baksætinu var að hefja mótaferil sinn í réttum búningi, sokkum og öllu saman. 8. desember 2009 06:00
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar