Skoðun

Útlegðardómar menningar-Elítunnar margfalt svæsnari en nokkurt krepputak!

Benedikt S. Lafleur skrifar

Ekki ætla ég hér að gera lítið úr afleiðingum efnahagskreppunnar. Fjölmargir missa vinnuna, tapa jafnvel aleigunni, ævisparnaði, fjölskyldur flosna upp og flest fyrirtæki eiga í vandræðum. Þó er því spáð að innan tveggja ára megi glytta í batahorfur. Sumir vilja nota tækifærið nú til að gera varanlegar stjórnsýslubreytingar til að uppræta rætur vandans. Sjálfur er ég í þeim flokki.

Á sama tíma hvet ég til allsherjaruppgjörs á öllum sviðum þjóðlífsins. Í alltof langan tíma hefur ósýnilegur hópur manna, sem mig langar að kalla hér menningar-Elítuna, ráðið lögum og lofum í menningargeiranum. Elíta þessi ræður hvaða listamenn eiga möguleika á viðurkenningu og listamannalaunum, hverjir geta fengið styrki, hvort bækur rithöfunda séu tilnefndar til verðlauna, hvort og hvaða listaverk hljóta gagnrýni o.s.frv.

Verst af þessu öllu er þó það að m-Elítan getur haft áhrif á það hvort listamaður og verk hans lifa yfir höfuð af. Það skiptir þá ekki öllu máli hvort það er góðæri eða hart í ári, listamaður sem virtur er að vettugi, (eins og nú tíðkast), ellegar lagður í einelti, jafnvel gerður útlægur, (eins og áður tíðkaðist), sá hinn sami á oftar en ekki erfitt uppdráttar eftir það. Ég þekki afbragðs listamenn sem skrimta með naumindum af því að selja verk sín.

Sumir njóta vissrar hylli almennings en fá hvergi pláss í söfnum og þar af leiðandi hvorki krítík né þann viðurkenningarstimpil sem þarf til að fanga athygli kaupenda. Þessir listamenn, sumir snillingar, kippa sig ekki upp við kreppuna nú: Þeir hafa aldrei þekkt annað!

Nú þegar góðærið er á undanhaldi rís m-Elítan upp og fagna því að mammonsskeiðinu sé lokið. Hún hrópar: Niður með kapítalismann og upp með ríkið! Hún þykist berjast fyrir jafnrétti en viðheldur í raun kerfi þar sem hún hefur töglin og haldirnar.

Óréttlátt launakerfi listamanna er afsakað með fjársvelti. Í framkvæmd virkar kerfið alltof oft á einhvern hátt svona: Rithöfundur sem enginn les og skrifar sína fyrstu bók fær laun í sex mánuði á meðan annar sem margir þekkja og hefur skrifað allt upp í 20 bækur fær engin laun. Sá fyrsti hefur potað sér áfram í gegnum stórt forlag, hinn síðarnefndi hefur kannski engan áhuga á því. Sá fyrri á mjög langt í land með að skapa þjóðinni tekjur af verkum sínum, sá seinni er miklu nær því marki. Samt fær hann engan stuðning. M-Elítan getur auðvitað haldið áfram óbreyttri stefnu og murrkað lífið úr nýjum frumkvöðlum og listsnillingum.

Til eru æði margir listamenn sem hafa verið gerðir útlægir úr listaheiminum. Sá frægasti er Finnur Jónsson, sem Evrópa taldi í hópi bestu myndlistarmanna heims, eins og Kandinsky og Paul Klee. Hann naut aldrei stuðnings yfirvalda hér, var meinuð þátttaka í samsýningum íslenskra listamanna erlendis þó hann lifði góðu lífi á list sinni og seldi sum verk sín í útlöndum fyrir ótrúlegar upphæðir. Aðrir fóru mun verr út úr ofsóknunum.

Rithöfundar, skáld og aðrir listamenn, bæði dánir og núlifandi. Það er of langt mál að telja þá alla hér: Eggert Guðmundsson, Ásgeir Bjarnþórsson, Jutta Devulder, Nína Sæmundsson, Ólafur Túbals, Einar Hákonarsson, Kristmann Guðmundsson, Indriði G. Þorsteinsson, Gunnar Dal og fjölmargir fleiri. Frægar eru nú sögur af þekktum meisturum sem greiddu bankamönnum skuldir sínar með ódauðlegum verkum, til eru enn fleiri sem hafa og treina enn lífið í krafti vöruskipta. Kannski að slík viðskipti komist aftur í tísku í kreppunni.

Á meðan getur Hin Ósýnilega menningar-Elíta sofið róleg með góða samvisku, alveg eins og útrásarvíkingarnir og stjórnmálamennirnir sem Hún gagnrýnir hvað harðast um þessar mundir, Hún er nefnilega í senn gagnsæ og áþreifanleg, ósýnileg og valdamikil, enginn fær nokkurn tíma að kjósa um Hana þó áhrifa Hennar gætir í öllu litrófi stjórnmálanna, Hún veit allt um alla en enginn veit neitt um Hana, Hún gagnsýrir allt þjóðfélagið og nær meira að segja langt út fyrir landsteinana. Þegar allt kemur til alls er Hún ein stór óræð gáta sem ég eftirlær ykkur, lesendum góðum, að ráða í það sem eftir lifir árs.

Ef ykkur tekst að ráða hana megið þið gjarna deila með mér lausninni. Góðar stundir!

Greinarhöfundur er sjálfstætt starfandi listamaður.






Skoðun

Skoðun

Hver borgar brúsann?

Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar

Sjá meira


×