Innlent

Breytti bókuninni á síðustu stundu

Gunnar H. Hjálmarsson fara­borgar­fulltrúi F-listans.
Gunnar H. Hjálmarsson fara­borgar­fulltrúi F-listans.

Varamaður F-lista, Gunnar H. Hjálmarsson, segir að skrifstofustjóri borgarstjórnar hafi ýjað að því að hann ætti ekki að hafa kafla um meint hagsmunatengsl Kjartans Gunnarssonar og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra í bókun F-lista 1. desember.

„Hann spurði hvort þetta væri viðeigandi og hvort þetta væru ekki dylgjur eða slíkt. Ég er nú kannski ekki vanur stjórnmálamaður og ég lét þetta hafa áhrif á mig,“ segir Gunnar, sem tók kaflann út.

Fulltrúar F-lista hafa haldið því fram að Hanna Birna hafi verið vanhæf í málum þar sem Landsbankinn kom við sögu, meðal annars vegna samstarfs Hönnu Birnu og Kjartans Gunnarssonar, fyrrum framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokks og stjórnarformanns Landsbanka.

Ólafur Kr. Hjörleifsson, skrifstofustjóri borgarstjórnar, vill ekki ræða um einstök samtöl við borgarfulltrúa. Oft sé þeim þó bent á hvað kunni að stangast á við fundarsköp borgarinnar. Það sé svo undir viðkomandi borgarfulltrúa komið hvort hann taki mark á því eður ei.

Samkvæmt 19. grein samþykktar um stjórn borgar­innar og fundarsköp borgarstjórnar er vítavert að bera aðra menn brigslum. - kóþ




Fleiri fréttir

Sjá meira


×