Ástæðulaus ótti 2. desember 2009 06:00 Erna Indriðadóttir skrifar um stóriðju Það er mikil einföldun að kenna Kárahnjúkavirkjun um hrunið sem varð á Íslandi í október 2008 eins og andstæðingar byggingar virkjunarinnar hafa gert við ýmis tækfæri. Loftur Guttormsson, prófessor í sagnfræði, skrifaði grein í Fréttablaðið fimmtudaginn 25. nóvember, þar sem hann tekur undir þessi sjónarmið og varar við frekari uppbyggingu stóriðju. Vandaðir heimildaþættir BBC sjónvarpsstöðvarinnar um hrunið sem voru sýndir nýlega í Sjónvarpinu, sýna vel hvernig hinn vestræni fjármálaheimur riðaði til falls um svipað leyti og bankarnir féllu hér. Það sem gerði stöðuna verri á Íslandi en annars staðar var hversu stórt bankakerfið íslenska var, samanborið við hagkerfi landsins. Bankahrunið var ekki séríslenskt fyrirbæri og fyrir því voru margar og flóknar ástæður. Allar framkvæmdir sem voru í gangi fyrir hrun höfðu einhver áhrif á þensluna sem hér varð, þar með talið framkvæmdirnar á Austurlandi. Það voru hins vegar aðrir þættir sem vógu þarna miklu þyngra. Friðrik Sophusson, fyrrverandi forstjóri Landsvirkjunar, skrifaði grein í Morgunblaðið í lok september sem hann kallaði „Að hengja bakara fyrir smið". Þar birti hann tölur sem sýndu að það sem fyrst og fremst jók þensluna á árunum 2003-2007, voru byltingarkenndar breytingar á fjármálakerfinu sem dældi miklu erlendu fjármagni inn í hagkerfið, meðal annars með þeim afleiðingum að húsnæðisverð hækkaði upp úr öllu valdi. Hann benti á að bankarnir lánuðu á þessum árum um 500 milljarða króna til íbúðakaupa, en fyrir þá upphæð hefði mátt byggja allt að fjórar Kárahnjúkavirkjanir. Burtséð frá því hvaða skoðun menn kunna að hafa á virkjunum og stóriðju er mikilvægt að halda þessum staðreyndum til haga. Eftir stendur að á Reyðarfirði er risið eitt glæsilegasta álver heims sem skapar mikil verðmæti fyrir þjóðarbúið næstu áratugi og veitir ekki af. Loftur segir í grein sinni að Alcoa hafi fengið starfsleyfi vegna undanþágu frá mengunartakmörkunum Kyoto-bókunarinnar. Hið rétta er að íslenska ákvæðið sem svo hefur verið kallað, er viðurkenning á því að Íslendingar standa fremstir meðal þjóða í notkun endurnýjanlegrar orku. Um 80 prósent orkunnar sem notuð eru á Íslandi koma frá endurnýjanlegum orkugjöfum, á meðan Evrópubúar stefna að því að koma þessu hlutfalli í 20 prósent árið 2020. Þetta þýðir til dæmis að losun koltvísýrings á Íslandi frá vatnsaflsvirkjun og framleiðslu eins álvers, er átta sinnum minni en frá sambærilegri framleiðslu til dæmis í Kína, þar sem rafmagnið er framleitt með mengandi kolum. Þetta gerir að verkum að það er mun betra fyrir loftslagið í heiminum að framleiða ál á Íslandi en í löndum þar sem orkan er framleidd með jarðefnaeldsneyti. Á þessi sjónarmið benti til dæmis hagfræðingurinn og nóbelsverðlaunahafinn dr. Rajendra Pachauri, formaður loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna, þegar hann kom til Íslands fyrr á þessu ári. Og það eru þessi sjónarmið sem fengust viðurkennd í Kyoto-samkomulaginu á sínum tíma. Það er því ekki ástæða fyrir Loft að óttast að loftslaginu í heiminum stafi sérstök ógn af álframleiðslu á Íslandi. Höfundur er framkvæmdastjóri samfélags- og upplýsingamála Alcoa Fjarðaáls. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 28.06.2025 Halldór Miðflokkurinn – Rödd skynseminnar í borginni Ómar Már Jónsson Skoðun Sniðgangan á Rapyd slær öll met Björn B. Björnsson Skoðun Virði barna og ungmenna Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Frá Írak til Gaza: Hvað höfum við lært af lygunum og stríðsbröltinu? Helen Ólafsdóttir Skoðun Sættir þú þig við þetta? Jón Pétur Zimsen Skoðun Augnablikið Magnús Jóhann Hjartarson Skoðun Ísland gjaldþrota vegna fatlaðs fólks? Alma Ýr Ingólfsdóttir Skoðun Pólitískt hugrekki og pólitískt hugleysi: ólík stefna tveggja systurflokka Birgir Finnsson Skoðun Tölum um stóra valdaframsalsmálið Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Miðflokkurinn – Rödd skynseminnar í borginni Ómar Már Jónsson skrifar Skoðun Virði barna og ungmenna Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Sættir þú þig við þetta? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Alþingi gleymir aftur fötluðum börnum Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Lægri gjöld, fleiri tækifæri Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Tölum um stóra valdaframsalsmálið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Litla landið sem kennir heiminum – Ísland og þróunarsamvinna í gegnum menntun GRÓ skólanna Verena Karlsdóttir,Hreiðar Þór Valtýsson,Þór Heiðar Ásgeirsson skrifar Skoðun Öflugar varnir krefjast stöndugra fréttamiðla Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Gott frumvarp, en hvað með verklagið? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Augnablikið Magnús Jóhann Hjartarson skrifar Skoðun Listnám er lífsbjörg – opið bréf til ráðherra mennta, félags og heilbrigðismála, til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Dagbjört Andrésdóttir skrifar Skoðun Það þarf ekki að biðjast afsökunar á því að segja satt Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og Íslandsbanki, hluthafafundur á mánudag Bolli Héðinsson skrifar Skoðun „Þegar arkitektinn fer á flug“ - opinber umræða á villigötum Eyrún Arnarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfið þarf stjórnvöld með bein í nefinu Svandís Svavarsdóttir skrifar Skoðun Börn eru hvorki veiðigjöld né öryggis- og varnarmál Grímur Atlason skrifar Skoðun Í vörn gegn sjálfum sér? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Mig langar að byggja heim með frið og umlykja með ást Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þjóðin stendur með sjúkraliðum Sandra B. Franks skrifar Skoðun Vegið að íslenska lífeyriskerfinu Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar Skoðun Ísland gjaldþrota vegna fatlaðs fólks? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Veiðigjöld, gaslýsingar og valdníðsla Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Sniðgangan á Rapyd slær öll met Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Pólitískt hugrekki og pólitískt hugleysi: ólík stefna tveggja systurflokka Birgir Finnsson skrifar Skoðun Árið 2023 kemur aldrei aftur Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Trumpistar eru víða Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar Skoðun Fasteignagjöld eru lág í Reykjavík Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerræðisleg áform í anda Ráðstjórnarríkjanna Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi! Rakel Ýr Isaksen skrifar Skoðun Nýbakaðir foreldrar og óbökuð loforð Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Litla landið sem kennir heiminum – Ísland og þróunarsamvinna í gegnum menntun GRÓ skólanna Verena Karlsdóttir,Hreiðar Þór Valtýsson,Þór Heiðar Ásgeirsson skrifar
Skoðun Listnám er lífsbjörg – opið bréf til ráðherra mennta, félags og heilbrigðismála, til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Dagbjört Andrésdóttir skrifar
Skoðun Vegið að íslenska lífeyriskerfinu Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar
Skoðun Pólitískt hugrekki og pólitískt hugleysi: ólík stefna tveggja systurflokka Birgir Finnsson skrifar
Skoðun Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi! Rakel Ýr Isaksen skrifar