Það kraumar í tónlistinni 12. desember 2009 04:00 Dr. Spock í útrásargír enda víkingasveit.
Umsóknarferli Kraums fyrir verkefni sem eiga sér stað árið 2010 hófst í gær, á degi íslenskrar tónlistar. Kraumur tónlistarsjóður auglýsir eftir umsóknum fyrir verkefni á sviði íslenskrar tónlistar sem ráðgert er að eigi sér stað á næsta ári. Tónlistarmenn og hljómsveitir úr öllum geirum tónlistar eru hvattir til að sækja um fyrir sín verkefni. Umsóknarferlið er einnig opið fyrir verkefnastjóra og viðburði. Væntanlegum umsækjendum er bent á að kynna sér markmið og samþykktir sjóðsins á heimasíðu hans: www.kraumur.is. Umsóknarferlið hefst hinn 11. desember og lýkur 20. janúar. Umsóknum má skila með tölvupósti eða bréfleiðis. Kraumur tónlistarsjóður var stofnaður í byrjun árs 2008 af Aurora velgerðarsjóði, og hefur það meginhlutverk að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan. Markmið Kraums er að styrkja stöðu ungra tónlistarmanna á Íslandi með beinum styrkjum, faglegri aðstoð og samstarfi af ýmsu tagi. Kraumur hefur komið víða við á fyrstu tveimur starfsárum sínum. Kraumur hefur hrundið af stað og starfrækt eigin verkefni til stuðnings tónleikhaldi innanlands (Innrásin í samvinnu við Rás 2), plötugerð og plötuútgáfu (Kraumslistinn) og sömuleiðis svokölluðum Hljóðverssmiðjum í samvinnu við Músíktilraunir þar sem ungum og upprennandi listamönnum og hljómsveitum gefst kostur á að taka upp undir leiðsögn og fá ráð um næstu skref hjá reyndari listamönnum. Kraumur hefur einnig stutt og unnið með miklum fjölda listamanna að þeirra eigin verkefnum, haldið námskeið og vinnusmiðjur og komið að hinum ýmsu viðburðum. Meðal stuðningsverkefna Kraums eru Stofutónleikar á Listahátíð í Reykjavík, vinnusmiðjur ungra listamanna á Jazzhátíð Reykjavíkur, Fræðslunámskeið á Tónlistarhátíð unga fólksins og You Are in Control, Tónlistarkynning Víkings Heiðars Ólafssonar og Árna Heimis Ingólfssonar í framhaldsskólum landsins og samstarf við Náttúrutónleika Bjarkar, Sigur Rósar og Ólafar Arnalds í Laugardal. Meðal listamanna og hljómsveita sem Kraumur hefur unnið með og stutt við í kringum við ýmis sérverkefni á sviði plötuútgáfu, tónleikahalds og kynningarverkefna erlendis eru; Amiina, Benny Crespo‘s Gang, Bloodgroup, Dikta, Dr. Spock, Celestine, Elfa Rún Kristinsdóttir, FM Belfast, For a Minor Reflection, Helgi Valur, Hjaltalín, Lay Low, Melkorka Ólafsdóttir, Mugison, Morðingjarnir, Momentum, Mógil, Nordic Affect, Njútón, Nögl, Ólöf Arnalds, Ólafur Arnalds, Reykjavík!, Seabear, Sin Fang Bous, Sign, Skakkamanage, Skátar, Sudden Weather Change, Svavar Knútur, Sykur, Trúbatrix, Víkingur Heiðar Ólafsson og fleiri.- pbb
Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Sjá meira