Hefði mátt búa til 353 kíló af amfetamíni 11. júlí 2009 03:00 Fullkominn tækjabúnaður Sérfræðingur frá Interpol sagði verksmiðjuna eina þá fullkomnustu sem hann hefði séð. Mynd/lögreglan
Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Jónasi Inga Ragnarssyni og Tindi Jónssyni fyrir að hafa staðið saman að framleiðslu fíkniefna í iðnaðarhúsi í Hafnarfirði. Úr upphafsefnunum sem fundust í húsinu hefði mátt framleiða að minnsta kosti 353 kíló af amfetamíni, að því er segir í ákæru. Ákæran var birt tvímenningunum á fimmtudag. Jónas Ingi og Tindur voru handteknir vegna málsins um miðjan október í fyrra. Á tveimur stöðum í Hafnarfirði, að Móhellu og Rauðhellu, fundust 38 kíló af svokölluðu P-2-NP-efni, sem er upphafs- eða milliefni í amfetamínframleiðslu, og þrír og hálfur lítri af svokölluðum P-2-P-vökva. Úr því hefði verið unnt að framleiða minnst 353 kíló af amfetamíni. Þá fannst á stöðunum tveimur búnaður fyrir milljónir til fíkniefnaframleiðslu. Sérfræðingur um fíkniefnaverksmiðjur frá alþjóðalögreglunni Interpol, sem kom til landsins sérstaklega vegna málsins, sagðist aldrei hafa séð fullkomnari verksmiðju. Til marks um umfangið var að mennirnir fluttu til landsins rúmt tonn af íblöndunarefnum. Til viðbótar þessu er Jónas Ingi ákærður fyrir að hafa haft í vörslu sinni í öðru iðnaðarhúsnæðinu rúm átján kíló af kannabisefnum ætluðum til sölu, og að hafa átt tæp 700 grömm af amfetamíni í hinu húsinu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins gengst Jónas Ingi við því að eiga fíkniefnin, en neitar því hins vegar að hafa ætlað að framleiða fíkniefni úr upphafsefnunum sem fundust. Jónas og Tindur gætu átt von á tólf ára fangelsi fyrir brotið.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira