Innlent

Á þriðja þúsund vilja að Alþingi afgreiði Icesave strax

Rúmlega 2600 manns hafa skráð sig í hóp á samskiptasíðunni Facebook þar sem þess er krafist að Alþingi afgreiði án tafar frumvarp ríkisstjórnarinnar um skuldbindingar vegna Icesave reikninga Landsbankans. Hópurinn var stofnaður í gær.

„Nauðsynlegt er vegna efnahagsástandsins og sálarástands þjóðarinnar að Icesave verði afgreitt á Alþingi án frekari tafa. Hversu sárt sem það nú er þá er engin önnur leið fær en að samþykkja Icesave, að Ísland gangist við skuldbindingum sínum og geti þannig staðið hnarreist meðal annarra fullvalda þjóða," segir síðu hópsins.

Við þetta má bæta að yfir 25 þúsund manns hafa nú undirritað áskorun til Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, á vefsíðunni indefence.is, þar sem skorað er á forsetann að staðfesta ekki Icesave frumvarpið í núverandi mynd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×