Skoðun

Ráðstöfun Lottóhagnaðar

Hörður Þorsteinsson skrifar um Lottó.

Eiður Guðnason, fyrrverandi sendiherra, heldur áfram að hamast gegn íþróttahreyfingunni í grein sinni í Fréttablaðinu 10. desember. Þar fullyrðir hann að undirritaður hafi ekki hrakið neitt af því sem fram komi í grein hans um sama málefni sem líka birtist í Fréttablaðinu. Enn og aftur snýr Eiður út úr.

Ekki var ætlun mín að hrekja nokkuð af því sem Eiður leggur til um skiptingu Lottóhagnaðar. Hann má hafa þá skoðun á skiptingu opinbers fjár, þar með talið skiptingu Lottóhagnaðar, sem hann vill. Þeirri skoðun deili ég ekki með honum og get ég eitt um það sagt, að ég er þakklátur fyrir að hann er ekki lengur á Alþingi, þar sem ákvarðanir um skiptingu opinberra fjármuna eru teknar.

Aftur á móti fannst mér ómerkilegt af honum að gefa í skyn að íþróttafélög landsins og Ungmennasamtök Íslands noti fjármuni sína til að greiða ofurlaun og stundi brask. Íþróttasamband Íslands og Ungmennasamband Íslands standa fyrir viðamiklu starfi við ræktun lands og lýðs og fullyrði ég að þeim fjármunum sem renna til íþróttahreyfingarinnar sé vel varið. Ég hafna því að þeir séu nýttir til að greiða íþróttamönnum ofurlaun. Eðli málsins samkvæmt fer stór hluti þess fjármagns sem rennur til íþróttahreyfingarinnar í launagreiðslur, sem deilist á þúsundir þjálfara, leiðbeinenda og stjórnenda sem sjá um að þjálfa og skipuleggja þá starfsemi sem í boði er.

Eiður lýsir þeirri skoðun sinni að golfíþróttin eigi ekki að njóta ríkisstyrkja eða Lottóhagnaðar. Ég er sammála Eiði um að Lottóhagnaðurinn sé ígildi beinna ríkisstyrkja. Get ég því með sama hætti sagt að þeir sem vilja hlusta á Sinfóníuhljómsveit Íslands og fara á tónleika þeirra geti borgað það úr eigin vasa, í stað þess að hljómsveitin fái framlag úr ríkissjóði sem er hærra en samanlagt framlag ríkisins til ÍSÍ og afrakstur ÍSÍ af Lottóhagnaði.

Framlög ríkisins til listastofnana og listamanna eru margföld á við framlög til íþróttahreyfingarinnar. Ef breyta á fyrirkomulagi á skiptingu Lottóhagnaðar er eðlilegt að útgjöld til þessara samfélagsverkefna séu endurskoðuð í heild. Jafnframt væri fróðlegt að spyrja sendiherrann fyrrverandi hvort ekki sé jafnframt skynsamlegt að endurskoða einkaleyfi til happdrættisreksturs og reksturs spilakassa sem eru lögverndaðar peningamaskínur og skapa handhöfum þeirra margfalt fjármagn á við það sem Lottó skilar.

Það er sannfæring mín að fjármunir úr almannasjóðum til íþróttahreyfingarinnar sé skynsamleg ráðstöfun fjármagns. Forvarnargildi íþrótta er mikið og eykur lífsgæði þeirra sem þær stunda. Jafnframt sýna margar rannsóknir að íþróttaiðkun sparar útgjöld til heilbrigðis- og félagsmála. Með öflugum stuðningi við íþróttahreyfinguna væri hægt að spara mikla fjármuni í opinberum rekstri, sem við gætum nýtt í aðra samfélagslega þjónustu eins og menningu og listir.

Ef skoðað er frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2010 er því miður horfið af þeirri braut að efla fé til íþróttamála og mikill niðurskurður er á þeim málaflokki á meðan listastofnanir búa við lítinn sem engan niðurskurð á sinni starfsemi. Það er ekki okkar háttur í íþróttahreyfingunni að gagnrýna fjárveitingar til annarra aðila, við samgleðjumst með listastofnunum og listamönnum. Aftur á móti þurfum við í íþróttahreyfingunni að vera duglegri í að láta í okkur heyra og upplýsa ráðamenn um gildi íþróttastarfs fyrir samfélagið og hversu mikill þjóðhagslegur sparnaður er af því að hér á landi sé rekið öflugt íþróttastarf.

Höfundur er framkvæmdastjóri Golfsambands Íslands.




Skoðun

Skoðun

Vegið að ís­lenska líf­eyris­kerfinu

Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar

Sjá meira


×