Skoðun

Mikilvægi vegslóða fyrir ferðaþjónustuna

Þorvarður Ingi Þorbjörnsson skrifar um vegslóða.

Talsverð umræða hefur átt sér stað um vegslóða og utanvegaakstur. Vegslóðar eiga sér jafnlanga hefð og hestvagnar og vélknúin ökutæki hér á landi. Slóðar voru yfirleitt beinn undanfari vegagerðar. Enn nýtast slóðar í margvíslegum tilgangi. Sumir hafa öðlast varanlegan sess á meðan aðrir nýtast sem vinnuslóðar og ferðamannaleiðir. Vegslóðarnir eru mistorfærir en eiga það sameiginlegt að gera fólki kleift að njóta staða sem annars er erfitt að nálgast.

Akstur með ferðamenn um torfæra vegslóða, einkum á dagleiðum í námunda við höfuðborgarsvæðið er stór hluti ferðaþjónustu á Íslandi. Fjöldi erlendra ferðamanna sem ferðast um slíka vegslóða á sérútbúnum fjallabílum gæti verið 200.000 manns á ári. Það eru um 40% allra erlendra ferðamanna sem til landsins koma. Þessi ferðamennska skilar miklum gjaldeyri í þjóðarbúið. Ferðaþjónusta er sú atvinnugrein sem viðheldur hvað best flæði gjaldeyris til landsins. Stór kostur við notkun þessara ferðamannaslóða er að þeir nýtast jafnt að vetri sem sumri og stuðla þannig að auknum fjölda ferðamanna allt árið um kring.

Vegslóðar fyrir ferðaþjónustu eru því verðmætaskapandi, rétt eins og línuvegir fyrir stóriðju. Hagsmunir aðila í ferðaþjónustu sem byggja á notkun vegslóða eru hagsmunir þjóðarinnar. Því er áríðandi að stjórnvöld og félagasamtök skilji mikilvægi þessarar starfsemi og leggi ekki stein í götu hennar. Halda þarf áhugaverðum vegslóðum opnum og styðja við bakið á þeim aðilum sem vilja sjá vandfarna vegslóða myndaða þannig að þeir lagi sig að landinu. Einnig þarf að gæta þess að umferð um þá sé takmörkuð við vel útbúna fjallabíla sem ætla má að komist klakklaust um þá. Draga mætti stórlega úr utanvegaakstri með því að merkja upphaf og lok þessara vegslóða með skiltum og hafa þá vel merkta á á kortum og í GPS-tækjum. Þeir sem aka torfæra vegslóða til að njóta útsýnis og upplifunar eru ekki síður útivistarfólk en aðrir. Aðalatriðið er að bera virðingu fyrir ferðamáta hvers annars, lágmarka hljóð- og sjónmengun og sýna tillitssemi. Við rúmumst öll á hálendinu. Skipuleggjum þessa blönduðu umferð í sameiningu, þannig að allir megi vel við una.

Við sem byggjum afkomu okkar af akstri á fjallabílum með ferðamenn bjóðum fram aðstoð við skipulag og viðhald vegslóða.

Höfundur er formaður Jeppavina, samtaka súperjeppabílstjóra í ferðaþjónustu.




Skoðun

Skoðun

Vegið að ís­lenska líf­eyris­kerfinu

Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar

Sjá meira


×