Mikilvægi vegslóða fyrir ferðaþjónustuna 17. desember 2009 06:00 Þorvarður Ingi Þorbjörnsson skrifar um vegslóða. Talsverð umræða hefur átt sér stað um vegslóða og utanvegaakstur. Vegslóðar eiga sér jafnlanga hefð og hestvagnar og vélknúin ökutæki hér á landi. Slóðar voru yfirleitt beinn undanfari vegagerðar. Enn nýtast slóðar í margvíslegum tilgangi. Sumir hafa öðlast varanlegan sess á meðan aðrir nýtast sem vinnuslóðar og ferðamannaleiðir. Vegslóðarnir eru mistorfærir en eiga það sameiginlegt að gera fólki kleift að njóta staða sem annars er erfitt að nálgast. Akstur með ferðamenn um torfæra vegslóða, einkum á dagleiðum í námunda við höfuðborgarsvæðið er stór hluti ferðaþjónustu á Íslandi. Fjöldi erlendra ferðamanna sem ferðast um slíka vegslóða á sérútbúnum fjallabílum gæti verið 200.000 manns á ári. Það eru um 40% allra erlendra ferðamanna sem til landsins koma. Þessi ferðamennska skilar miklum gjaldeyri í þjóðarbúið. Ferðaþjónusta er sú atvinnugrein sem viðheldur hvað best flæði gjaldeyris til landsins. Stór kostur við notkun þessara ferðamannaslóða er að þeir nýtast jafnt að vetri sem sumri og stuðla þannig að auknum fjölda ferðamanna allt árið um kring. Vegslóðar fyrir ferðaþjónustu eru því verðmætaskapandi, rétt eins og línuvegir fyrir stóriðju. Hagsmunir aðila í ferðaþjónustu sem byggja á notkun vegslóða eru hagsmunir þjóðarinnar. Því er áríðandi að stjórnvöld og félagasamtök skilji mikilvægi þessarar starfsemi og leggi ekki stein í götu hennar. Halda þarf áhugaverðum vegslóðum opnum og styðja við bakið á þeim aðilum sem vilja sjá vandfarna vegslóða myndaða þannig að þeir lagi sig að landinu. Einnig þarf að gæta þess að umferð um þá sé takmörkuð við vel útbúna fjallabíla sem ætla má að komist klakklaust um þá. Draga mætti stórlega úr utanvegaakstri með því að merkja upphaf og lok þessara vegslóða með skiltum og hafa þá vel merkta á á kortum og í GPS-tækjum. Þeir sem aka torfæra vegslóða til að njóta útsýnis og upplifunar eru ekki síður útivistarfólk en aðrir. Aðalatriðið er að bera virðingu fyrir ferðamáta hvers annars, lágmarka hljóð- og sjónmengun og sýna tillitssemi. Við rúmumst öll á hálendinu. Skipuleggjum þessa blönduðu umferð í sameiningu, þannig að allir megi vel við una. Við sem byggjum afkomu okkar af akstri á fjallabílum með ferðamenn bjóðum fram aðstoð við skipulag og viðhald vegslóða. Höfundur er formaður Jeppavina, samtaka súperjeppabílstjóra í ferðaþjónustu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Til kennara og foreldra í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir,Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Þegar einhverfan er ósýnileg: Stúlkur og konur á einhverfurófi Vigdís M. Jónsdóttir Skoðun Við viljum ekki Sæbrautarstokk í nýja nefnd Regína Ásvaldsdóttir Skoðun Eru heimgreiðslur verkfæri djöfulsins? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Kaupmaðurinn á horninu er svarið Einar Mikael Sverrisson Skoðun Brottflutningur bandarísks herliðs frá Evrópu Arnór Sigurjónsson Skoðun Viðreisn stendur með Reykvíkingum - strax Björg Magnúsdóttir Skoðun Fleiri fána! Guðmundur Edgarsson Skoðun Allir æfa – Reykjavík á hreyfingu Rúnar Freyr Gíslason,Hafrún Kristjánsdóttir,Bjarni Fritzson Skoðun Gæði kennslu: Vandaðir kennsluhættir lykillinn að gæðum menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB: Hvað erum við að kjósa um? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Það sem sveitastjórnir geta gert gegn kynbundnu ofbeldi Drífa Snædal skrifar Skoðun Af hverju er verðbólga hjá okkur hærri en í nágrannalöndum? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Tímamót í uppbyggingarsögu Reykjavíkur Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Uppbygging íþróttamannvirkja á Akureyri - hugsum lengra Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Gæði kennslu: Vandaðir kennsluhættir lykillinn að gæðum menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar Skoðun Skólinn á að rúma okkur öll Rakel Viggósdóttir ,Rósanna Andrésdóttir skrifar Skoðun Þurfum við nýtt kerfi í stað jafnlaunavottunar? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn stendur með Reykvíkingum - strax Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Eru heimgreiðslur verkfæri djöfulsins? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Allir æfa – Reykjavík á hreyfingu Rúnar Freyr Gíslason,Hafrún Kristjánsdóttir,Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Til kennara og foreldra í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir,Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Byrjum á grunninum ekki þakinu Sigurlaug Vigdís Einarsdóttir skrifar Skoðun Brottflutningur bandarísks herliðs frá Evrópu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Geðheilbrigðisvandi, taktu númer…. Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég kýs með leikskólahjartanu Kristín Dýrfjörð skrifar Skoðun Fleiri fána! Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Við viljum ekki Sæbrautarstokk í nýja nefnd Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Þegar niðurstaðan kemur á undan greiningunni Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Kaupmaðurinn á horninu er svarið Einar Mikael Sverrisson skrifar Skoðun Kerfisbundinn ránsfengur: Hvernig OHF-væðingin breytti lýðveldinu í sjálfsafgreiðslustöð Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Flokkur fólksins þorir og getur Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Hin leiðin í umferðarmálum Gunnar Einarsson skrifar Skoðun Hraðar heim Sigrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Kristrún og Kópavogsskatturinn – opið bréf frá leikskólastjóra í Kópavogi Egill Óskarsson skrifar Skoðun Hugsum lengra en næstu kosningar Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þegar einhverfan er ósýnileg: Stúlkur og konur á einhverfurófi Vigdís M. Jónsdóttir skrifar Skoðun Er byggðastefna á Íslandi? Eyþór Stefánsson skrifar Skoðun Góð, betri, best Heiðrún Kristmundsdóttir skrifar Skoðun Byrgjum brunninn í stað þess að byggja brunna Bryndís Rut Logadóttir skrifar Sjá meira
Þorvarður Ingi Þorbjörnsson skrifar um vegslóða. Talsverð umræða hefur átt sér stað um vegslóða og utanvegaakstur. Vegslóðar eiga sér jafnlanga hefð og hestvagnar og vélknúin ökutæki hér á landi. Slóðar voru yfirleitt beinn undanfari vegagerðar. Enn nýtast slóðar í margvíslegum tilgangi. Sumir hafa öðlast varanlegan sess á meðan aðrir nýtast sem vinnuslóðar og ferðamannaleiðir. Vegslóðarnir eru mistorfærir en eiga það sameiginlegt að gera fólki kleift að njóta staða sem annars er erfitt að nálgast. Akstur með ferðamenn um torfæra vegslóða, einkum á dagleiðum í námunda við höfuðborgarsvæðið er stór hluti ferðaþjónustu á Íslandi. Fjöldi erlendra ferðamanna sem ferðast um slíka vegslóða á sérútbúnum fjallabílum gæti verið 200.000 manns á ári. Það eru um 40% allra erlendra ferðamanna sem til landsins koma. Þessi ferðamennska skilar miklum gjaldeyri í þjóðarbúið. Ferðaþjónusta er sú atvinnugrein sem viðheldur hvað best flæði gjaldeyris til landsins. Stór kostur við notkun þessara ferðamannaslóða er að þeir nýtast jafnt að vetri sem sumri og stuðla þannig að auknum fjölda ferðamanna allt árið um kring. Vegslóðar fyrir ferðaþjónustu eru því verðmætaskapandi, rétt eins og línuvegir fyrir stóriðju. Hagsmunir aðila í ferðaþjónustu sem byggja á notkun vegslóða eru hagsmunir þjóðarinnar. Því er áríðandi að stjórnvöld og félagasamtök skilji mikilvægi þessarar starfsemi og leggi ekki stein í götu hennar. Halda þarf áhugaverðum vegslóðum opnum og styðja við bakið á þeim aðilum sem vilja sjá vandfarna vegslóða myndaða þannig að þeir lagi sig að landinu. Einnig þarf að gæta þess að umferð um þá sé takmörkuð við vel útbúna fjallabíla sem ætla má að komist klakklaust um þá. Draga mætti stórlega úr utanvegaakstri með því að merkja upphaf og lok þessara vegslóða með skiltum og hafa þá vel merkta á á kortum og í GPS-tækjum. Þeir sem aka torfæra vegslóða til að njóta útsýnis og upplifunar eru ekki síður útivistarfólk en aðrir. Aðalatriðið er að bera virðingu fyrir ferðamáta hvers annars, lágmarka hljóð- og sjónmengun og sýna tillitssemi. Við rúmumst öll á hálendinu. Skipuleggjum þessa blönduðu umferð í sameiningu, þannig að allir megi vel við una. Við sem byggjum afkomu okkar af akstri á fjallabílum með ferðamenn bjóðum fram aðstoð við skipulag og viðhald vegslóða. Höfundur er formaður Jeppavina, samtaka súperjeppabílstjóra í ferðaþjónustu.
Allir æfa – Reykjavík á hreyfingu Rúnar Freyr Gíslason,Hafrún Kristjánsdóttir,Bjarni Fritzson Skoðun
Gæði kennslu: Vandaðir kennsluhættir lykillinn að gæðum menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir Skoðun
Skoðun Gæði kennslu: Vandaðir kennsluhættir lykillinn að gæðum menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar
Skoðun Allir æfa – Reykjavík á hreyfingu Rúnar Freyr Gíslason,Hafrún Kristjánsdóttir,Bjarni Fritzson skrifar
Skoðun Til kennara og foreldra í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir,Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar
Skoðun Kerfisbundinn ránsfengur: Hvernig OHF-væðingin breytti lýðveldinu í sjálfsafgreiðslustöð Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Kristrún og Kópavogsskatturinn – opið bréf frá leikskólastjóra í Kópavogi Egill Óskarsson skrifar
Allir æfa – Reykjavík á hreyfingu Rúnar Freyr Gíslason,Hafrún Kristjánsdóttir,Bjarni Fritzson Skoðun
Gæði kennslu: Vandaðir kennsluhættir lykillinn að gæðum menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir Skoðun