Íslendingar verja mestu til menntastofnana innan OECD 9. september 2008 09:19 MYND/GVA
Ísland er í efsta sæti meðal OECD-ríkja sem verja mestu til menntastofnana samkvæmt nýju riti sem Efnahags- og framfarastofnunin hefur gefið út. Útgjöld Íslendinga námu átta prósentum af vergri landsframleiðslu árið 2005 en að meðaltali vörðu OECD-ríkin 6,1 prósentum af vergri landsframleiðslu til menntastofnana. Útgjöld til menntastofnana jukust í öllum OECD-löndunum frá 1995 til 2005 og að meðaltali um 19 prósent frá 2000 til 2005. Í ritinu kemur enn fremur fram að útgjöld til allra skólastiga á Íslandi aukist um 61 prósent á föstu verðlagi og er það mesta aukning innan OECD á þessu tímabili. Útgjöld til grunn- og framhaldsskóla jukust um 40 prósent og til háskóla um 77 prósent. Á sama tíma hefur þjóðarframleiðsla aukist um 23 prósent. Gríðarleg fjölgun í háskólum á tíu árum Tölur OECD sýna enn fremur að mikil fjölgun hafi orðið í háskólum. Árið 1995 sóttu að meðaltali 37 prósent fólks á háskólaaldri í OECD-löndunum háskóla en nú er hlutfallið 57 prósent að meðaltali. „OECD segir að fleiri telji að kostnaði við menntun skuli skipt á milli opinberra aðila og einkaaðila, a.m.k. á háskólastigi, þar sem bæði einkaaðilar og opinberir aðilar njóti ávinningsins af háskólamenntun. Að sögn OECD hafa mörg Evrópulönd ekki aukið opinber útgjöld til háskóla í takt við fjölgun nemenda, með þeim afleiðingum að útgjöld á nemanda eru að meðaltali meira en tvöfalt hærri í Bandaríkjunum en í Evrópu. Sum löndin heimili háskólum ekki að innheimta skólagjöld og því aukist fjárhagsvandi háskólanna. Það muni hugsanlega leiða til þess að gæði námsins minnki, sérstaklega ef háskólanemendum heldur áfram að fjölga. Ríkisstjórnir landanna standi því frammi fyrir erfiðum ákvörðunum um fjármögnun háskólamenntunar," segir í skýrslunni sem vitnað er til á heimasíðu Hagstofunnar. Útskriftarhlutfall úr háskólum hæst hér á landi Samantektin sýnir enn fremur að nærri 85 prósent unglinga á aldrinum 15-19 ára stunda nám hér á landi en meðaltalið í OECD er tæp 82 prósent. Í aldurshópnum 20-29 ára eru svo 37,2 prósent Íslendinga í námi en eingöngu í Finnlandi og Danmörku stunda fleiri nám á þessum aldri. Þá eru 60 prósent nýnema á háskólastigi hér á landi konur, en meðaltal OECD-landanna er 54 prósent. Á Íslandi er nettó útskriftarhlutfall í háskólanámi það hæsta sem gerist í OECD-löndunum. Nettó útskriftarhlutfall fyrir fyrstu háskólagráðu úr fræðilegu háskólanámi er nærri 63 prósent en meðaltal OECD-ríkja er rúm 37 prósent. Útskriftarhlutfallið á Íslandi er 86,5 prósent hjá konum og 40,2 prósent hjá körlum. Hvergi í OECD-ríkjunum er meiri munur á útskriftarhlutfalli karla og kvenna.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Sjá meira