Sautján læknar á Höfn komu og fóru 9. apríl 2008 12:16 Höfn í Hornafirði.
Hornafjörður hefur ekki farið varhluta af þeim læknavandræðum sem hrjá sum sveitarfélög en árið 2006 ræktu alls 17 læknar þrjár stöður heimilislækna sem Heilbrigðisstofnun Suðausturlands á Höfn hefur heimild fyrir. Sveitarfélagið fékk Capacent til að kanna ánægju íbúanna með læknisþjónustu og var heildarútkoma könnunar þar sem spurt var „Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ertu með læknaþjónustu í sveitarfélaginu?" sú að 66,7% kváðust óánægð með þjónustuna, 18,6% ánægð og 14,7% hvorki né. Könnunin var framkvæmd vorið 2007. Embætti landlæknis framkvæmdi aðra könnun í haust þar sem notendur heilsugæsluþjónustu, þ.e. þeir sem komu á staðinn, voru spurðir út í ýmsa þjónustuþætti og var heildarútkoma þar almenn ánægja með þjónustu heilsugæslunnar en tekið var sérstaklega fram að um töluverðar kvartanir væri að ræða vegna skorts á fastráðnum læknum. Mannað viku í einu Guðrún Júlía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands, sagði ástandið vissulega hafa verið bágborið þegar verst lét: „Maður þurfti bara að hugsa um viku í einu við að manna stöður lækna, við viljum vera með tvo lækna virka daga og svo einn á vakt. Þetta kom verst niður á þeim sjúklingum sem eru með langvarandi sjúkdóma. Þeir þurfa alltaf að vera að koma nýjum og nýjum læknum inn í sín mál," sagði Guðrún. Hún sagði enn fremur frá því að þrjá daga haustið 2006 hefði verið algjörlega læknislaust á staðnum og næsti læknir verið á Djúpavogi. „Núna er staðan þannig að þetta lítur ágætlega út fram á vor á næsta ári, einn kemur í haust og verður allan næsta vetur og annar þeirra sem er núna hjá okkur ætlar að vera áfram," sagði Guðrún. Kynna þarf læknastörf á landsbyggðinni Málþing um heilbrigðisþjónustu í dreifbýli var haldið í Hornafirði 3. apríl þar sem heilbrigðisráðherra, landlæknir og fleiri fluttu ávörp. Guðrún sagði að meðal þess sem rætt hefði verið þar væri þörf á aukinni kynningu þess hve spennandi það væri að vera læknir úti á landi, hvernig koma mætti til móts við vaktabyrði lækna auk þess sem rætt hefði verið um nám lækna, bæði endurmenntun og þörfina á því að koma dvöl úti á landi inn í læknanámið svo unglæknar kynnist því að starfa sem læknar á landsbyggðinni. Sagði Guðrún það miður að hin svokallað héraðsskylda sem áður var við lýði væri aflögð. „Áður fyrr var það þannig að læknar fóru í sérnám til útlanda og fengu ekki stöðu strax í Reykjavík. Þá þurftu þeir að bíða í einhver ár úti á landi," sagði hún. Guðrún sagði ýmsa þætti vera til þess að draga úr áhuga lækna á starfi á landsbyggðinni: „Við ræddum um það á málþinginu að áður hafi líf læknisins bara snúist um það að vera læknir. Núna eru þetta orðnir fleiri þættir sem spila inn í, t.d. fjölskyldan, vaktabyrði og atvinna maka sem mér finnst vera dálítill þáttur í því hvort læknar vilji starfa úti á landi. Sérhæfingin er líka orðin mikil, læknir úti á landi verður að vera mjög fjölhæfur, hann getur t.d. ekki sérhæft sig í barnalækningum eða einhverju öðru," sagði Guðrún að lokum.
Mest lesið Mótmælendur lokuðu veginum að Bláa lóninu Innlent Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Erlent Grunur um að maður hafi kveikt í húsi í Reykjanesbæ Innlent Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Erlent Von der Leyen dásamaði útsýnið á Reykjavíkurflugvelli Innlent Félag eldri borgara vildi bygginguna nær lóðarmörkunum Innlent Ætlar ekki að þegja til að láta fordómafullu fólki líða betur Innlent Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Innlent Segir ferðaþjónustunni mismunað og efnir til mótmæla Innlent Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Innlent Fleiri fréttir Í beinni: Blaðamannafundur Kristrúnar og von der Leyen Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Gosið lifir enn og mengun norður í landi Flugvél snúið við vegna eldgossins: Var í fjörutíu klukkustundir á leið til Íslands Grindvíkingar setja þrýsting á lögreglustjóra Háskólinn fær 200 milljónir vegna vatnslekans Telur stuðning við ESB-viðræður til staðar Telur enga leið til þess að lengja strandveiðitímabilið Flutti tæp þrjú kíló af kókaíni til landsins og fær tvö ár Ætlar ekki að þegja til að láta fordómafullu fólki líða betur Strandveiðar færast frá Viðreisn til Flokks fólksins Myndir: Flugu til Þórsmerkur og Grindavíkur Mótmælendur lokuðu veginum að Bláa lóninu „Annars lítur þetta ekki mjög vel út fyrir þær“ „Sýnið nú kjark og dug og gerið þetta almennilega“ Grunur um að maður hafi kveikt í húsi í Reykjanesbæ Staðan á gosinu og óánægja með lokanir í Grindavík Segir ferðaþjónustunni mismunað og efnir til mótmæla Félag eldri borgara vildi bygginguna nær lóðarmörkunum Von der Leyen dásamaði útsýnið á Reykjavíkurflugvelli Landlæknir hlynnt því að banna ljósabekki Loftgæði mælast óholl á Akureyri Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Met í verðtryggðum lánveitingum lífeyrissjóðanna Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði Sjá meira
Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“