Innlent

Sektaður fyrir að afskrá ekki lénið tónlist.is

MYND/E.Ól

Neytendastofa hefur sektað karlmann um hálfa milljón króna fyrir að hafa ekki farið að ákvörðun stofnunarinnar um að afskrá lénið tónlist.is.

Eftir kvörtun frá eignarhaldsfélaginu MúsikNet, sem rekur vefinn tonlist.is, yfir skráningu og notkun Vagnsson MultiMedia á léninu tónlist.is skoðaði Neytendastofa málið og komst að því að Vagnsson MultiMedia hefði brotið gegn lögum um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins.

Var félaginu bannað að nota lénið og gert að afskrá það innan fjögurra vikna. Þegar eigandi lénsins hafði ekki sinnt þessu innan fjögurra vikna og eftir áminningu ákvað Neytendastofa að beita hann sektum sem fyrr segir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×