Körfubolti

Jón Arnór meiddur á ný

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Arnór í leiknum gegn Chorale Roanna í síðustu viku.
Jón Arnór í leiknum gegn Chorale Roanna í síðustu viku. Nordic Photos / AFP

Meiðsli Jón Arnórs Stefánssonar hafa tekið sig upp á nýjan leik og er óvíst hversu lengi hann verður frá í þetta sinn.

Hann meiddist í leik Lottomatica Roma og Chorale Roanna í Meistaradeild Evrópu í síðustu viku og gat því ekki spilað með Rómverjum í ítölsku bikarkeppninni í gær.

Roma tapaði í gær fyrir La Fortezza Bologna, 75-69, og eru því úr leik í keppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×