Rætt við aðila vinnumarkaðarins á næstu dögum 12. febrúar 2008 15:22 MYND/Vilhelm
Geir H. Haarde forsætisráðherra á von á því að ríkisstjórnin ræði við aðila vinnumarkaðarins um aðkomu að kjarasamningum á næstu dögum. Þessi orð lét hann falla í utandagskrárumræðu um kjarasamninga og efnahagsmál á Alþingi í dag. Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, var upphafsmaður utandagskrárumræðunnar og benti á að válynd tíðindi væru í efnahagsmálum og hætta væri á alvarlegum samdrætti í hagkerfinu. Á sama tíma væru kjarasamningar lausir og þá gerði Guðjón mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar að umtalsefni. Spurði hann hvort ríkisstjórin hygðist ekkert aðhafast í málinu. Forsætisráðherra sagði efnahags-, atvinnu- og kjaramál vera stöðugt viðfangsefni ríkisstjórnar og Alþingis. Í aðdraganda kjarasamninga væri vandmeðfarnara að ræða um kjaramál og að því þyrfti að huga. Geir benti á að samningsaðilar væru langt komnir og allir hlytu að vona að þau mál yrðu leidd farssællega til lykta. Ríkisstjórnin myndi ekki skorast undan því að ræða við aðila vinnumarkaðarins um hvernig hún gæti liðkað fyrir samningum. Hann ætti von á því að rætt yrði við samningsaðila um það hvernig ríkisstjórnin og Alþingi gætu komið að þessum málum á næstu dögum. Geir benti á að staða ríkissjóðs og lífeyrissjóðanna væri sterk og það viðurkenndu allir menn sem hefðu áhuga á að leiða sannleikann í ljós. Þá sagði hann mótvægisaðgerðir hafa verið undirbúnar og þær væru að skila sér. Ríkisstjórnin væri jafnframt reiðubúin að endurskoða þær er þurfa þykir. ,,Ég legg áherslu á að í aðdraganda kjarasamninga verði allir að tala varlegar en hitt," sagði forsætisráðherra. Ríkisstjórnin sýnir sinnuleysi Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, sagði sinnuleysi ríkisstjórnarinnar í kjaramálum ekki hafa farið fram hjá neinum. Það hlyti að teljast ábyrgðarhlutur við þesar aðstæður að taka ekki þátt í því að bæta kjör þeirra verst settu og ná tökum á efnahagsástandinu. Þá gagnrýndi hann framlag Samtaka atvinnulífsins í kjaraviðræðunum þess efnis að ríkisstjórnin ætti ekki að standa í vegi fyrir uppbygginu stóriðju. Spurði hann Samfylkinguna hvort hún væri sátt við sinnuleysi forsætisráðherra og fjármálaráðherra um að ríkisstjórnin skili auðu varðandi þá lægst launuðu og kennara. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra mótmælti því að ríkisstjórnin sýndi sinnuleysi í kjaramálum. Það mætti færa rök fyrir því að ríkisstjórnin ætti að taka kjaraviðræður í fangið en hún væri ekki þeirrar skoðunar. Ríkisstjórnin ætti að fylgjast með og koma inn í kjaraviðræðurnar þegar þurfa þætti og útlit væri fyrir að sá tímapunktur væri nú um helgina. Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, sagði verðbólguna vera hið stóra vandamál og það væri hættulegt fyrir íslenskt verkafólk ef víxlhækkanir launa og verðbólgu yrðu að veruleika. Guðni sagði alla kjarasamninga í óvissu og ábyrgðarlaust að ganga fram við þessar aðstæður og bjóða einni stétt kauphækkun í dag og annarri á morgun. Stóra málið væri verðbólgan. Hann ætti sér þann draum að ríkisstjórnin vaknaði og tæki á vandanum. Íslendingar þyrftu snertilendingu og ná verðbólgunni niður því hún væri þjófur í veskjum landsmanna.
Mest lesið Skotin með gúmmíkúlu í beinni frá mótmælunum Erlent Ísraelsher stöðvaði skútuna og handtók áhöfnina Erlent Sannfærð um sakleysi eiginmannsins og segir hann hetjuna sína Erlent Konan er fundin Innlent Íslendingur á válista CIA árið 1970 Innlent Newsom ætlar að kæra Trump Erlent „Erum ekki að lýsa yfir stuðningi við Trump“ Innlent Mjög áhyggjufull yfir tilfærslu ráðuneytisins Innlent Tveir sjúkrabílar kallaðir út vegna bílslyss við Mjódd Innlent Ekki hægt að nota rafræn skilríki Innlent Fleiri fréttir Tveir sjúkrabílar kallaðir út vegna bílslyss við Mjódd Sóttu veikan sjómann Konan er fundin Slökktu eld á svölum á fjórðu hæð í Engihjalla Ekki hægt að nota rafræn skilríki Mjög áhyggjufull yfir tilfærslu ráðuneytisins Frestun fjármagns til verkmenntaskóla, mótmæli í LA og fjölmenningarhátíð Komu í veg fyrir sýruleka á Akureyrarhöfn „Erum ekki að lýsa yfir stuðningi við Trump“ Þotur notaðar í flugi Icelandair til Nuuk Íslendingur á válista CIA árið 1970 Flutningur Konukots mikið framfaraskref en skilur áhyggjur nágranna Vond stjórnsýsla að teikna bara einhverja reiti á kort Fresta uppbyggingu verkmenntaskóla: „Þessi óvissa er fyrir neðan allar hellur“ Menningarveisla í allt sumar á Sólheimum Björgunarsveit selur derhúfur í stíl Bandaríkjaforseta Alvarlegt ástand í Los Angeles og opnun nýs Konukots Eftirlýstur maður handtekinn grunaður um vændiskaup Ríkisstjóri Utah heimsækir Eyjar: Mormónarnir vissu allt um sprönguna Heilbrigðisstofnun Suðurnesja skilaði 800 milljónum til ríkissjóðs Alþjóðlegir sérfræðingar ræða baráttuna gegn myglu í Hörpu Hermenn í Los Angeles, mylguráðstefna og síðasti leikur Arons Pálmarssonar Hætta með ökuskírteini í símaveski vegna Evrópureglna Evrópusambandið, rétttrúnaður og endurskoðun veiðiráðgjafarinnar Þrír reyndu að komast undan lögreglu Jöklar hér á landi minnkað um eina Lúxemborg Sækja WorldPride í skugga bakslags í réttindum hinsegin fólks 70 milljóna króna halli vegna uppsagnar samningsins Beðasléttur í borginni: Óttast óafturkræfan skaða á Laugarnesi Fleiri börn deyja á Gasa og óttast um fornminjar í Laugarnesi Sjá meira