Erlent

Hættir rannsókn á máli Madeleine

Portúgalska lögreglan hefur látið af rannsókn á hvarfi litlu stúlkunnar Madeleine McCann, ef marka má fréttir fjölmiðla þar í landi. Madeleine hvarf af hótelherbergi þegar hún var á ferðalagi með foreldrum sínum í Portúgal í maí á síðasta ári.

Um tíma var talið að foreldrar hennar bæru ábyrgð á hvarfi hennar en hún er ekki lengur á meðal grunaðra. Tvö portúgölsk dagblöð greindu frá því í gær að lögreglan gæti hafið rannsókn á málinu að nýju ef ný sönnunargögn kæmu fram í málinu.



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×