Erlent

Ræningi Madeleine aftur á ferðinni?

Óli Tynes skrifar
Þessi mynd var teiknuð eftir lýsingu vinkonu McCann hjónanna.
Þessi mynd var teiknuð eftir lýsingu vinkonu McCann hjónanna.
Portúgalska lögreglan rannsakar nú hvort maður sem reyndi að ræna ungri stúlku þar sé sá sami sem var grunaður um að hafa rænt Madeleine McCann.

Teikning var gerð af þeim manni eftir lýsingu vinkonu McCann hjónanna, sem lýstu manni sem þau höfðu illan bifur á.

Í þessu tilfelli reyndi maður að neyða fimmtán ára stúlku upp í bíl sinn. Henni tókst að rífa sig lausa.

Lýsing hennar þykir stemma mjög við myndina sem teiknuð var af hinum grunaða. Sá maður fannst og var yfirheyrður á sínum tíma, en engar vísbendingar fundust sem gáfu ástæðu til frekari rannsóknar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×