Fráskilinn Bjarni Haukur lélegur að skreyta 12. desember 2008 14:49 Bjarni Haukur Þórsson.
Einleikurinn „Pabbinn" var frumsýndur í Iðnó fyrir rúmu ári . Sýningin fékk strax gríðarlega góðar viðtökur hjá gagnrýnendum sem og áhorfendum. Eftir rúmlega 50 troðfullar sýningar í Iðnó fluttist sýningin í Íslensku óperuna vegna vinsælda og fyrir þessi jól gefst íslensku þjóðinni einstakt tækifæri að eignast „Pabbann" á DVD. Vísir hafði samband við Bjarna Hauk Þórsson leikara en hann er sjálfur pabbi, einstæður pabbi. Hann skildi við eiginkonu sína og barnsmóður fyrir tveimur árum. „Það er mjög gott samkomulag hjá mér og barnsmóður minni. Það gæti ekki verið betra," svarar Bjarni Haukur aðspurður út í fjölskylduhagina en tekur sérstaklega fram að „Pabbinn" fjallar ekki um einstæða feður heldur upplifun karlmanna þegar nýtt barn kemur í heiminn og hvernig allt breytist. Hvernig verða jólin hjá ykkur feðgum? „Þau verða bara frábær. Það er bara „family time" og þetta er nú voðalega klassískt. Við skreytum jólatréð. Annars kann ég ekkert að skreyta og er svakalega lélegur í öllu sem við kemur jólaskreytingum. Sonur minn kvartaði um daginn yfir þessu þannig að ég þarf að gera eitthvað í þessum málum. Hann verður fimm ára í janúar," segir Bjarni Haukur. Samdir þú „Pabbann" út frá þinni eigin reynslu? „Já, já og félögunum. En diskurinn er kannski ekki fyrir yngstu meðlimi fjölskyldunnar. Það er ekki alveg við hæfi þegar foreldrarnir tyggja hamborgarahrygginn og börnin spyrja yfir jólamatnum: Hvað eru eggjastokkar?" „Það þarf að skýra það út fyrir þeim yngstu en „Pabbinn" er fyrir ömmu og afa og allt liðið. Fínt að sjá diskinn eftir jólasteikina," segir Bjarni Haukur að lokum.
Mest lesið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Fleiri fréttir Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Sjá meira