Með þinni hjálp Jónas Þórir Þórisson skrifar 5. desember 2008 08:00 Hin árlega jólasöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar er hafin. Eins og undanfarin ár hafa gíróseðlar verið sendir inn á heimili landsmanna að upphæð kr. 2.500. Yfirskrift söfnunarinnar er Vilt þú hjálpa? Hjálparstarf kirkjunnar vill minna á að „það er gott að gefa“. Það er gott að geta verið í þeirri stöðu að rétta öðrum hjálparhönd hvort sem það er hér á okkar landi eða erlendis. Hjálparstarf kirkjunnar hefur í mörg ár sinnt öflugu hjálparstarfi bæði hér heima og erlendis. Jólasöfnunin hefur verið helguð erlendu hjálparstarfi en innanlandshjálpin er rekin fyrir sérmerkt framlög einstaklinga, félaga, fyrirtækja og opinberra aðila og verið viðamesta einstaka verkefnið sem stofnunin hefur sinnt undanfarin ár. Vegna þess ástands sem nú ríkir í þjóðfélaginu ákvað stjórn Hjálparstarfsins að helmingurinn af almennu söfnunarfé rynni til innanlandshjálpar en hinn helmingurinn til vatnsverkefna í Afríku. Þeir sem vilja leggja Hjálparstarfinu lið geta greitt heimsendan gíróseðil eða hringt í söfnunarsíma 907 2002 og þá rennur framlag þeirra kr. 2.500 til aðstoðar innanlands. Hringi þeir í síma 907 2003 rennur sama upphæð til hjálparstarfa erlendis. Einnig er hægt að fara inn á gjafasíðurnar gjöfsemgefur.is og framlag.is og velja sér verkefni til að styðja. Hjálparstarf kirkjunnar hefur lagt mikla áherslu á fagleg og vönduð vinnubrögð bæði hér heima og í hjálparstarfi erlendis. Reynt er að forðast að gera þiggjandann háðan aðstoðinni. Markmiðið er alltaf hjálp til sjálfshjálpar. Hjálparstarfið hefur tekið að sér skuldbindingar erlendis til nokkurra ára í senn. Reynt verður eftir fremsta megni að standa við þær enda eiga margir allt sitt undir því komið og ekki er hægt að hlaupa frá þeirri ábyrgð sem við höfum axlað í því samhengi. Á sama hátt hefur Hjálparstarf kirkjunnar hlutverki að gegna hér innanlands. Stofnunin sinnir neyðaraðstoð í samstarfi við presta, félagsráðgjafa og annað fagfólk um allt land. Þörfin fyrir aðstoð hefur aukist mjög síðustu mánuðina og margir hafa í fyrsta skipti þurft að stíga þau þungu spor að leita til Hjálparstarfsins eftir bráðustu nauðsynjum. Í ljósi þeirrar stöðu sem nú er uppi í samfélaginu mun stofnunin að sjálfsögðu takast á við þau erfiðu verkefni sem fram undan eru og veita þá hjálp sem möguleg er. Geta Hjálparstarfs kirkjunnar nær þó ekki lengra en það fjármagn sem hún hefur til raðstöfunar hverju sinni. Því ríður á að við öll sem höfum einhverju að miðla gleymum ekki náunga okkar, hvort sem hann býr hér á landi eða í öðrum löndum. Oft hefur verið þörf fyrir aðstoð en nú er nauðsyn. Tökum höndum saman og leggjumst á árarnar. Þjóðin hefur allt til þess að bera að sigrast á þeim erfiðleikum sem nú steðja að og einnig rétta öðrum þjóðum hjálparhönd. Gleðilega aðventu. Höfundur er framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 04.04.2026 Halldór Eins gott að þjóðin viti ekki of mikið Jón Pétur Zimsen Skoðun Tækifæri til að lækka verðbólgu Marinó G. Njálsson Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson Skoðun Hvenær hætta börn að rétta upp hönd? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson Skoðun Álftanes – ný byggð á flóðasvæði Einar Sveinbjörnsson Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson Skoðun Ísland selur sig ekki sjálft – og óvissa selur ekkert Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Dauði eða ofsakvíði? Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjaldið: aukin skattheimta á þá sem minna mega sín? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson skrifar Skoðun Sjálfsmynd þjóðar Steinar Harðarson skrifar Skoðun Viltu ná niður þinni eigin verðbólgu? Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvenær hætta börn að rétta upp hönd? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar hljóð og mynd fara ekki saman Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Beiting helmingaskiptareglunnar við fjárskipti hjóna Sveinn Ævar Sveinsson skrifar Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson skrifar Skoðun Tækifæri til að lækka verðbólgu Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Eins gott að þjóðin viti ekki of mikið Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Sterkari saman og til þjónustu reiðubúin Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Hver heldur á fjarstýringunni í íslensku samfélagi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvar býrðu? Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Ísland selur sig ekki sjálft – og óvissa selur ekkert Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Föstudagurinn langi spyr: stöndum við með týndu börnunum okkar? Steinþór Þórarinsson skrifar Skoðun Lágir skattar og góð þjónusta fara saman í Kópavogi Guðmundur Jóhann Jónsson skrifar Skoðun Píeta samtökin 10 ára – samstaða um von Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Markaðsöflin græða meðan börnin tapa Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Álftanes – ný byggð á flóðasvæði Einar Sveinbjörnsson skrifar Skoðun Má lækka skatta? Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Um langa föstudaga, fólk á flótta og konur sem þora Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Horn í síðu fyrirtækjareksturs Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Flokksformaðurinn sem styður þjóðarmorð Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Bændur, páskalamb og sjókvíaeldi Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Nokkrar staðreyndir um frítt í strætó fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Nokkrar staðreyndir um frítt í strætó fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar