Erlent

Verðbólgan í Simbabve 2.200.000%

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Óhætt er að segja að óðaverðbólga sé í Simbabve. Mynd/ AFP.
Óhætt er að segja að óðaverðbólga sé í Simbabve. Mynd/ AFP.

Verðbólga í Simbabve er nú komin í 2,200,000% samkvæmt opinberum gögnum þar í landi. Þetta eru fyrstu verðbólgutölur í landinu frá því í febrúar síðastliðnum, en þá stóð hún í 165 þúsund prósentum.

Simbabve var eitt sinn eitt ríkasta ríki í Afríku en nú er efnahagslífið þar ein rjúkandi rúst. Forseta Simbabve, Robert Mugabe, er einna helst kennt um þessar ófarir. Hann var sjálfkjörinn forseti að nýju í síðasta mánuði.

Morgan Tsvangirai, mótframbjóðandi hans, dró framboð sitt til baka og sagði að stjórnvöld hefðu ráðist á stuðningsmenn sína og myrt þá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×