Viðskipti innlent

Tryggingarsjóður ábyrgur fyrir innlánum Glitnis í Bretlandi

Það er álit Fjármálaeftirlitsins að Tryggingarsjóður innistæðueigenda sé ábyrgur fyrir andvirði tiltekinna heildsöluinnlána Glitnis í Bretlandi.

Í frétt um málið á vefsíðu FME segir: „Þann 31. október 2008 fékk Fjármálaeftirlitið staðfestingu á því að Glitnir banki hf. hafi ekki verið fær um að inna af hendi greiðslu á andvirði tiltekinna heildsöluinnlána í Bretlandi þann 3. október 2008. Það er álit Fjármálaeftirlitsins að sama dag hafi Glitnir banki hf. ekki verið fær um að inna af hendi greiðslu á andvirði innstæðna tiltekinna reikninga, þeirra viðskiptavina sem þess kröfðust.

Samkvæmt lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta hefur vegna ofangreindra tilvika stofnast til greiðsluskyldu Tryggingasjóðs innstæðueigenda og fjárfesta gagnvart viðskiptavinum Glitnis banka hf. sem ekki hafa fengið greiddar innstæður heildsöluinnlána, í samræmi við ákvæði laganna."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×