Tómas fær styttu á áberandi stað í borginni 16. september 2008 14:46 Tómas Guðmundsson.
Í borgarstjórn Reykjavíkur í dag var samþykkt með níu atkvæðum borgarfulltrúa meirihlutans auk F-lista að láta gera myndastyttu af Tómasi Guðmundssyni, sem oft er kallaður borgarskáldið. Það var Kjartan Magnússon sem lagði fram tillöguna en fulltrúar Samfylkingar og VG sátu hjá í málinu. Tillagan gerir ráð fyrir að styttunni verði komið fyrir á áberandi stað í borginni. Í greinargerð með tillögunni segir: „Tómas Guðmundsson er oft kallaður borgarskáldið en hann varð einna fyrstur til að yrkja af aðdáun og áhuga um Reykjavík. Allt frá upphafi síðustu aldar höfðu flest höfuðskáld Íslendinga búið í Reykjavík en fæst þeirra litu á borgina sem boðlegt yrkisefni. Skáldin voru þá enn upptekin af fegurð náttúrunnar og sveitanna en borgarlandslagið og borgarlífið átti ekki heima í kveðskap. Tómas breytti þessu með kvæðabókinni ,,Fagra veröld", sem kom út árið 1933 og hlaut einróma lof fyrir ljóðræna orðfimi. Tómas fór ekki út í náttúruna heldur inn í borgina í leit að yrkisefnum og kvæði hans um Vesturbæinn, Austurstræti, Reykjavíkurhöfn, Hljómskálagarðinn, húsin í bænum og fjölskrúðugt mannlífið urðu landskunn. Áhrif Tómasar á síðari tíma skáld eru mikil og enn má finna þau í verkum yngstu skálda. Tómas er eitt af ástsælustu skáldum þjóðarinnar og verk hans lifa með Reykvíkingum og raunar landsmönnum öllum." Í greinargerðinni er einnig bent á að á áttunda áratugnum létu borgaryfirvöld gera brjóstmynd af Tómasi og var henni komið fyrir í Austurstræti við Reykjavíkurapótek. „Á tíunda áratugnum var brjóstmyndin tekin niður vegna framkvæmda í Austurstræti en hún hafði þá orðið fyrir hnjaski af mannavöldum þar sem hún stóð nokkuð berskjölduð. Um árabil var brjóstmyndin höfð í geymslu og hennar saknað af mörgum. Árið 2000 var brjóstmyndinni komið fyrir að nýju í Borgarbókasafni Reykjavíkur og þar hefur hún verið síðan," segir að lokum. Þótt Borgarbókasafnið sé fjölsótt stofnun, verður að telja víst að mun færri sjá brjóstmyndina nú en þegar hún var á miðju stræti í hjarta borgarinnar. Staðsetning brjóstmyndarinnar í Austurstræti var þó ekki óumdeild á sínum tíma. Var m.a. bent á að meginreglan væri sú að brjóstmyndir væru staðsettar innan húss og til að þær nytu sín úti við, þyrftu þær að vera í sérstöku rými. Í ljósi framlags Tómasar Guðmundssonar til menningarlífs Reykjavíkur og þess heiðursess, sem hann skipar í hugum borgarbúa, fer vel á því að gerð sé stytta af Tómasi og henni komið fyrir á áberandi stað í hjarta Reykjavíkur. Vel færi á því að slíkri styttu yrði valinn staður í Hljómskálagarðinum í námunda við stytturnar af Jónasi Hallgrímssyni og Bertel Thorvaldsen. Ýmsir aðrir staðir gætu þó komið til greina, t.d. á Landakotstúninu, við gönguleiðir í Vesturbænum eða nálægt Reykjavíkurhöfn.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira