Andrúmsloftið í húsinu varð lélegt þegar það fór að ganga illa Óskar Ófeigur Jónsson í Róm skrifar 9. júní 2008 10:17 Jón Arnór Stefánsson í leik með Lottomatica Roma. Nordic Photos / AFP
Jón Arnór Stefánsson og félagar í Lottomatica Roma eru komnir í slæma stöðu í baráttunni um ítalska meistaratitilinn. Liðið er komið 0-3 undir á móti Montepaschi Siena og þarf nú að vinna fjóra leiki í röð til þess að geta unnið titilinn. Lottomatica byrjaði leikinn frábærlega, komst í 20-9 og var mest 20 stigum yfir, 34-14, um miðjan annan leikhluta. Síðan fór allt að ganga á afturfótunum og í seinni hálfleik gekk allt á afturfótunum. Siena nýtti sér það vel og vann átta stiga sigur, 72-80. "Ef við eigum að eiga möguleika á því að vinna þetta lið þá þurfum við að spila eins og við gerðum í fyrsta fjórðungi. Við sýndum það þá og höfum gert það að við getum spilað við hvaða lið sem er. Við misstum dampinn og vorum ekki tilbúnir að taka á móti þeim þegar þeir komu til baka. Við vorum kannski ofurspenntir fyrir leikinn," sagði Jón Arnór eftir leik og fannst líka að áhorfendurnir hefðu mátt styðja betur við bakið á þeim þegar það fór að ganga illa. "Þegar á móti blés þá leit út fyrir það að við réðum ekki við mótlætið. Við fengum ekki líka ekki nægilega hjálp frá áhorfendunum og andrúmsloftið varð lélegt í húsinu. Þegar illa gengur þá fáum við ekki rétta stuðninginn og kraftinn frá stuðningsmönnunum, það verður allt svo neikvætt og það hefur áhrif á okkur," sagði Jón Arnór sem hitti úr 3 af 6 skotum sínum og spilaði hörku vörn allan leikinn.
Körfubolti Mest lesið Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Óvíst hvort bardaginn milli Fury og Joshua fari fram Sport Fleiri fréttir Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Sjá meira