Sport

Holland sigraði í ótrúlegum leik

Hollenska landsliðið stimplaði sig inn sem sigurstranglegasta liðið á Evrópumótinu í fótbolta með því að leggja sterkt lið Frakka 4-1. Hollenska liðið lék nær óaðfinnanlega í leiknum og skoraði tvö stórkostleg mörk.

Dirk Kuyt kom Hollendingum yfir eftir 10 mínútur með skalla eftir hornspyrnu. Markið skrifast að hluta á Florent Malouda sem átti að ekka Kuyt en réð ekki við styrk hans.

Robin Van Persie bætti svo öðru marki við á 59. mínútu eftir laglegt spil og hraða sókn. Robben komst í gegn vinstra megin og sendi boltann fyrir á fjærstöngina þar sem Van Persie var mættur. Hann setti boltann í markið með viðkomu í Coupet, markverði Frakka.

Skömmu síðar virtust Frakkar ætla að koma sér inn í leikinn þegar Thierry Henry skoraði af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá Wily Sagnol. Þeir voru hins vegar rotaði aðeins einni mínútu síðar þegar Arjen Robben skoraði hreint út sagt ótrúlegt mark. Hann fékk boltann inn í teig, vinstra meginn við markið, rétt við endalínuna. Í stað þess að senda boltann á samherja sína í teignum dúndraði Robben boltanum upp í marknetið, yfir hausinn á Coupet.

Rúsínan í pylsuendanum kom svo í blálokinn þegar Wesley Sneijder skoraði fallegasta mark mótsins til þessa. Hann fékk boltann rétt fyrir framan vítateiginn með franskan varnarmann í bakinu. Með einni snertingu snéri Sneijder sér til vinstri og lét vaða á markið með hægri fæti. Skotið endaði í slánni og þaðan í marknetinu og sigur Hollendinga þar með fullkomnaður.

Þeir eru öryggir áfram í 8. liða úrslit en mæta Rúmenum í næstu umferð. Þá mætast einnig Ítalir og Frakkar sem hvorugir hafa unnið leik. Bæði liðin verða því að vinna til þess að eiga von um að komast áfram. En um leið verða þau að treysta á að Hollendingar leggji Rúmena.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×