Ógeðfelld orð um mömmu fylltu mælinn 25. febrúar 2008 19:57 Það var tilfinningaþrungin stund þegar tilkynnt var um sigur Eurobandsins. Mynd/ Daníel.
Mercedes Club, sem hefur hreinlega gert allt vitlaust undanfarnar vikur með laginu Ho, Ho, Ho, We Say Hey, Hey, hefur skrifað undir útgáfusamning við Senu. Gillzenegger, hljómborðsleikari sveitarinnar, sagði í samtali við Vísi nú undir kvöld að ekki lægi fyrir hvenær hljómdiskur kæmi út. Hann sagði þó mikið að gera hjá Mercedes Club eftir að undankeppni Evróvision lauk. En það er ekki tónlistin sem hefur vakið mesta athygli frá því að undankeppnin fór fram á laugardaginn heldur pillur sem þeir Gillzenegger og Friðrik Ómar, úr Eurobandinu, hafa verið að senda hvor öðrum í fjölmiðlum. Deilurnar má rekja til þess að Friðrik Ómar sagði þegar sigurlagið var kynnt: „Glymur hæst í tómri tunnu." Þeir Friðrik Ómar og Gillzenegger ræddu málin í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í kvöld. Þar sagði Friðrik að stuðningsmenn Mercedes Club hefðu haft uppi mörg ógeðfelld orð, sem hann gæti ekki haft eftir. „En þau voru meðal annars um móður mína og það fyllti mælinn hjá mér," sagði Friðrik Ómar í Kastljósinu. Gillzenegger sagði í Íslandi í dag að hann væri mjög sáttur við frammistöðu Mercedes Club í keppninni. Tæknileg vandamál hefðu hins vegar gert söngkonu hljómsveitarinnar erfitt fyrir en hann væri stoltur af framlagi hennar.
Mest lesið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Lífið samstarf Fleiri fréttir Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Sjá meira